Framhaldsaðalfundur Orkuveitu Reykjavíkur fór fram í dag, 20. ágúst 2026, þar sem kjöri stjórnar fyrirtækisins var lýst. Það eru sveitarstjórnir eigenda Orkuveitunnar – Reykjavíkurborgar, Akraneskaupstaðar og Borgarbyggðar – sem kjósa fulltrúana.
Formaður var kjörinn Ari Edwald, borgarfulltrúi. Hann er með háskólapróf í lögfræði og MBA og hefur gegnt starfi forstjóra hjá 365 miðlum og Mjólkursamsölunni.
Stjórn Orkuveitunnar er þannig skipuð:
Sigurður Guðmundsson situr fundi stjórnar sem áheyrnarfulltrúi Borgarbyggðar.
Varamenn eru: Magnea Gná Jóhannsdóttir, Brynjar Níelsson, Heiða Björg Hilmisdóttir, Auður Hermannsdóttir, María Sigríður Guðjónsdóttir og Liv Aase Skarstad. Áheyrnarfulltrúi til vara er Ragnhildur Eva Jónsdóttir.