Kaldalón hf. hefur lokið endurkaupum á eigin bréfum með öfugu tilboðsfyrirkomulagi sem tilkynnt var um þann 21. september sl.
Tilboð bárust fyrir 16.598.874 hluti á genginu 24,0. Ákveðið var að taka tilboðum um kaup á 16.500.000 hlutum á genginu 24,0, alls kr. 396.000.000. Þar sem tilboð bárust umfram það magn sem ákveðið var að kaupa var tilboðum tekið hlutfallslega (pro rata). Uppgjörsdagur samþykktra tilboða er fimmtudagurinn 24. september næstkomandi.
Endurkaupin eru í samræmi við viðeigandi lög og reglugerðir, þ.m.t. lög nr. 2/1995 um hlutafélög, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR) og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2016/1052 sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir, sem hafa lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum.
Eftir framangreind kaup á Kaldalón hf. 22.596.232 hluti eða sem nemur 1,8% af útgefnu hlutafé.
Nánari upplýsingar veitir,
Högni Hjálmtýr Kristjánsson, framkvæmdastjóri rekstrar
hogni.kristjansson@kaldalon.is