Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á nýjum flokki skuldabréfa sem telja til eiginfjárþáttar 2 (e. Tier 2), ISB T2 36, fyrir samtals 1.400 m.kr. Heildareftirspurn í útboðinu var 3.300 m.kr.
Samþykkt tilboð í flokkinn ISB T2 36 voru samtals 1.400 m.kr. á 1,02% álagi á 1 mánaða REIBOR. Heildartilboð voru 3.300 m.kr. á álagi á bilinu 0,79% til 2,00%.
ISB T2 36 er óverðtryggður skuldabréfaflokkur með mánaðarlegum fljótandi vaxtagreiðslum á grundvelli eins-mánaðar REIBOR vaxtagrunni (hér eftir „skuldabréfin“). Lokagjalddagi skuldabréfanna er 24. september 2036 með innköllunarheimild af hálfu útgefanda í september 2031 og á öllum vaxtagjalddögum þar á eftir.
Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 24. september 2026.
Skuldabréfin verða gefin út undir fjögurra milljarða evra Euro Medium Term Notes (EMTN) útgáfuramma Íslandsbanka.
Grunnlýsingu útgáfurammans má finna á vefsíðu fjárfestatengsla: https://www.islandsbanki.is/is/vara/bankinn/fjarmognun-bankans.
Umsjónaraðili útboðsins var Verðbréfamiðlun Íslandsbanka.
Frekari upplýsingar veita:
Fjárfestatengsl, ir@islandsbanki.is
Fyrirspurnir frá fjölmiðlum, pr@islandsbanki.is