Reykjavík, fimmtudagur, 1. október, 2026 -- Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) gefur út viðskiptayfirlit mánaðarlega fyrir kauphallir sínar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum. Helstu atriði úr viðskiptayfirliti Nasdaq Iceland (Kauphallarinnar) fyrir september 2026 eru eftirfarandi:
Hlutabréf:
Úrvalsvísitalan (OMXI15) lækkaði um 4% í september og stendur nú í 2.516 stigum. Heildarvísitalan (OMXIPI) lækkaði um 3,3% í mánuðinum og stendur í 2.025 stigum.
Heildarviðskipti með hlutabréf í september námu 43 milljörðum eða 1.959 milljónum á dag. Það er 34% hækkun frá fyrri mánuði, en í ágúst 2026 námu viðskipti með hlutabréf 1.458 milljónum á dag. Milli ára lækkaði velta í september um 28% (viðskipti í september 2025 námu 2.735 milljón á dag).
Mest viðskipti í mánuðinum voru með bréf Íslandsbanka, 8,9 milljarðar, Arion banka, 5,4 milljarðar, Alvotech, 3,6 milljarðar, Kviku, 2,8 milljarðar og Festi, 2,8 milljarðar.
Heildarfjöldi viðskipta með hlutabréf í september voru 6.917 talsins eða 314 að jafnaði á dag. Fjöldi viðskipta hækkaði um 10,6% milli mánaða en í ágúst 2026 voru viðskipti með hlutabréf 284 að jafnaði á dag. Milli ára lækkaði fjöldi viðskipta í september um 24,8% (í september 2025 voru viðskipti með hlutabréf 418 að jafnaði á dag).
Flest viðskipti í mánuðinum voru með bréf Alvotech, 1.181, Íslandsbanka, 1.047, Arion banka, 697, Icelandair, 561 og Amaroq, 547.
Á Aðalmarkaði var Íslandsbanki með mestu hlutdeildina, 19,3%, næst kom Fossar fjárfestingarbanki með 19,2% og Acro verðbréf þar á eftir með 19,1%.
Í lok mánaðar voru hlutabréf 32 félaga skráð á Aðalmarkað og Nasdaq First North vaxtarmarkaðinn á Íslandi. Nam heildarmarkaðsvirði skráðra félaga 2.375 milljörðum króna í lok mánaðarins (samanborið við 2.456 milljarða í lok ágúst 2026).
Skuldabréf:
Heildarviðskipti með skuldabréf námu 108 milljörðum í september sem samsvarar 4,9 milljarða veltu á dag. Það er 7,7% lækkun frá fyrri mánuði (viðskipti í ágúst 2026 námu 5,3 milljörðum á dag) og 51,1% lækkun frá fyrra ári (viðskipti í september 2025 námu 10 milljörðum á dag).
Alls námu viðskipti með ríkisbréf 82,2 milljörðum og viðskipti með bankabréf 20,8 milljörðum.
Á skuldabréfamarkaði var Íslandsbanki með mestu hlutdeildina, 28,5%, næst kom Landsbankinn með 18,5% og Fossar fjárfestingarbanki með 16,9%.
Aðalvísitala skuldabréfa (NOMXIBB) hækkaði um 0,41% í mánuðinum og stendur nú í 2066 stigi. Óverðtryggða skuldabréfavísitala Kauphallarinnar (NOMXINOM) hækkaði um 0,18% og sú verðtryggða (NOMXIREAL) hækkaði um 0,72%.
Sjá upplýsingar/myndir í viðhengi fyrir hlutdeild kauphallaraðila á hlutabréfa- og skuldabréfamarkaði.
Fyrir frekari upplýsingar um tölfræði og tölfræðiáskrift sjá https://www.nasdaq.com/european-market-activity/news/statistics
Um Nasdaq
Nasdaq (Nasdaq: NDAQ) er alþjóðlegt tæknifyrirtæki sem þjónar verðbréfamörkuðum og öðrum atvinnugeirum. Fjölbreytt framboð okkar af markaðsgögnum, greiningarvörum, hugbúnaði og þjónustu gerir viðskiptavinum okkar kleift að láta framtíðarsýn þeirra verða að veruleika. Til að fræðast meira um félagið, tæknilausnir og störf hjá okkur, smellið á LinkedIn, Twitter @Nasdaq eða www.nasdaq.com