Viðskiptayfirlit júlí 2026 – Nasdaq Iceland
Reykjavík, þriðjudagur, 4. ágúst, 2026 -- Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) gefur út viðskiptayfirlit mánaðarlega fyrir kauphallir sínar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum. Helstu atriði úr viðskiptayfirliti Nasdaq Iceland (Kauphallarinnar) fyrir júlí 2026 eru eftirfarandi:
Hlutabréf:
Úrvalsvísitalan (OMXI15) hækkaði um 0,72% í júlí og stendur nú í 2.626 stigum. Heildarvísitalan (OMXIPI) hækkaði um 0,56% í mánuðinum og stendur í 2.040 stigum.
Heildarviðskipti með hlutabréf í júlí námu 41 milljarði eða 1.786 milljónum á dag. Það er 25,4% lækkun frá fyrri mánuði, en í júní 2026 námu viðskipti með hlutabréf 2.394 milljónum á dag. Milli ára lækkaði velta í júlí um 36,6% (viðskipti í júlí 2025 námu 2.815 milljón á dag).
Mest viðskipti í mánuðinum voru með bréf Íslandsbanka, 10,2 milljarðar, Arion banka, 10,1 milljarður, Festi, 3,9 milljarðar, Haga, 2,5 milljarðar og Kviku, 1,5 milljarðar.
Heildarfjöldi viðskipta með hlutabréf í júlí voru 5.533 talsins eða 241 að jafnaði á dag. Fjöldi viðskipta lækkaði um 35,6% milli mánaða en í júní 2026 voru viðskipti með hlutabréf 373 að jafnaði á dag. Milli ára lækkaði fjöldi viðskipta í júlí um 49,6% (í júlí 2025 voru viðskipti með hlutabréf 477 að jafnaði á dag).
Flest viðskipti í mánuðinum voru með bréf Íslandsbanka, 1.076, Alvotech, 737, Arion banka, 569, Amaroq, 443 og Icelandair, 330.
Á Aðalmarkaði var Fossar fjárfestingarbanki með mestu hlutdeildina, 24,9%, næst kom Íslandsbanki með 21,1% og Arion Banki þar á eftir með 20%.
Í lok mánaðar voru hlutabréf 32 félaga skráð á Aðalmarkað og Nasdaq First North vaxtarmarkaðinn á Íslandi. Nam heildarmarkaðsvirði skráðra félaga 2.395 milljörðum króna í lok mánaðarins (samanborið við 2.367 milljarða í lok júní 2026).
Skuldabréf:
Heildarviðskipti með skuldabréf námu 69,6 milljörðum í júlí sem samsvarar 3 milljarða veltu á dag. Það er 49,7% lækkun frá fyrri mánuði (viðskipti í júní 2026 námu 6 milljörðum á dag) og 30,6% lækkun frá fyrra ári (viðskipti í júlí 2025 námu 4,4 milljörðum á dag).
Alls námu viðskipti með ríkisbréf 50,6 milljörðum og viðskipti með bankabréf 14,6 milljörðum.
Á skuldabréfamarkaði var Íslandsbanki með mestu hlutdeildina, 25,6%, næstir komu Fossar fjárfestingarbanki og Arion banki með 18,6%.
Aðalvísitala skuldabréfa (NOMXIBB) hækkaði um 0,15% í mánuðinum og stendur nú í 2051 stigi. Óverðtryggða skuldabréfavísitala Kauphallarinnar (NOMXINOM) hækkaði um 0,23% og sú verðtryggða (NOMXIREAL) hækkaði um 0,03%.
Sjá upplýsingar/myndir í viðhengi fyrir hlutdeild kauphallaraðila á hlutabréfa- og skuldabréfamarkaði.
Fyrir frekari upplýsingar um tölfræði og tölfræðiáskrift sjá
https://www.nasdaq.com/european-market-activity/news/statistics
Um Nasdaq
Nasdaq (Nasdaq: NDAQ) er alþjóðlegt tæknifyrirtæki sem þjónar verðbréfamörkuðum og öðrum atvinnugeirum. Fjölbreytt framboð okkar af markaðsgögnum, greiningarvörum, hugbúnaði og þjónustu gerir viðskiptavinum okkar kleift að láta framtíðarsýn þeirra verða að veruleika. Til að fræðast meira um félagið, tæknilausnir og störf hjá okkur, smellið á LinkedIn, Twitter @Nasdaq eða www.nasdaq.com
Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur
Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur. Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu Nasdaq. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem Nasdaq hefur ekki stjórn á. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur.
Nasdaq Nordic lýsir sameiginlegri þjónustu Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland og Nasdaq Stockholm.
Fjölmiðlasamskipti Nasdaq Iceland
Kristín Jóhannsdóttir
Sími: 868 9836