Þegar Hampiðjan gekk frá kaupum á 75,1% hlut í indverska neta- og kaðlafyrirtækinu Kohinoor Ropes í ársbyrjun 2025 var, eins og áður hefur verið kynnt, samið um árangurstengda viðbótarkaupgreiðslu. Samkvæmt ákvæðum kaupsamningsins skyldi viðbótarkaupgreiðsla koma til ef félagið næði tilteknum EBITDA-markmiðum á fyrstu tveimur rekstrarárunum eftir kaupin.
Við verðmat félagsins var byggt á EBITDA fyrri ára, með sérstakri áherslu á rekstrarárið 2024 þegar EBITDA nam 3,67 m€. Rekstrarár á Indlandi fylgja ekki almanaksárinu og vísar rekstrarárið 2024 því til tímabilsins 1. apríl 2023 til 31. mars 2024. Við kaupin var miðað við EBITDA-margfaldarann 10,86.
Markmið samningsins voru að EBITDA næði 4,45 m€ á rekstrarárinu 2025 og 5,52 m€ á rekstrarárinu 2026. Ef fyrra markmiðið næðist ekki, en samanlögð EBITDA beggja ára færi yfir 9,97 m€, skyldi viðbótarkaupgreiðsla greidd að fjárhæð 2,07 m€ fyrir hvort ár, eða samtals 4,14 m€.
Þrátt fyrir að EBITDA-markmið fyrsta ársins næðist ekki að fullu var árangur seinna ársins það sterkur að samanlögð EBITDA beggja ára fór yfir umsamið 9,97 m€ markmið. EBITDA rekstrarársins 2026 nam 6,2 m€, sem er tæplega 70% hærra en sú EBITDA sem lögð var til grundvallar við kaupin. Er það afar ánægjulegt að þessum árangri hafi verið náð.
Frá því Kohinoor varð hluti af samstæðu Hampiðjunnar hefur félagið sýnt sterka rekstrarþróun, styrkt stöðu sína á lykilmörkuðum og fest sig í sessi sem mikilvæg framleiðslueining fyrir önnur félög innan samstæðunnar. Árangurinn staðfestir þær forsendur sem lágu að baki kaupunum og undirstrikar það mikilvæga hlutverk sem félagið gegnir í áframhaldandi uppbyggingu samstæðunnar.
Í dag greiðir Hampiðjan viðbótarkaupgreiðslu til seljenda Kohinoor Ropes Pvt. Ltd. í samræmi við ákvæði kaupsamningsins.
Hjörtur Erlendsson, forstjóri Hampiðjunnar:
„Við erum afar ánægð með þann árangur sem náðst hefur hjá Kohinoor frá því félagið varð hluti af samstæðu Hampiðjunnar. Sú staðreynd að samanlögð EBITDA-markmið beggja ára hafi náðst og að viðbótarkaupverðið greiðist að fullu staðfestir styrk rekstursins og þau tækifæri sem við sáum í félaginu við kaupin. Árangurinn er fyrst og fremst til marks um öflugt starfsfólk, sterka stjórnendur, mikinn metnað og farsælt samstarf innan samstæðunnar.
Jafnframt erum við að stíga stór skref í frekari uppbyggingu starfseminnar á Indlandi. Á iðnaðarsvæðinu Auric, austan við Aurangabad, verður fyrsta stóra framleiðsluhúsið, alls 28.000 m², tekið í notkun á næstu vikum og þar mun framleiðsla á fiskeldiskvíum hefjast síðar á árinu. Samhliða er unnið að byggingu annars húss af sambærilegri stærð ásamt skrifstofu- og þjónustuhúsnæði fyrir starfsfólk. Gert er ráð fyrir að þeirri uppbyggingu verði að mestu lokið um áramótin en heildarbyggingarmagn svæðisins mun þá nema 59.200 m².
Meginverkefni ársins 2027 verður að byggja upp starfsemina í Auric og flytja hluta framleiðslu frá Litháen til Indlands. Markmiðið er að sú framleiðsla sem fyrirhugað er að færa verði komin í fullan rekstur á árinu 2028 og styðji þannig við áframhaldandi vöxt og samkeppnishæfni samstæðunnar.“