Helstu atriði úr fjárhagsuppgjöri 2F 2026
Guðmundur Kristjánsson, forstjóri:
„Afkoma Brims var góð á öðrum ársfjórðungi og sama gildir um fyrri hluta ársins. Ánægjulegt er að sjá að þrátt fyrir minni afla aukast tekjur. Verð á botnfiskafurðum okkar á erlendum mörkuðum, einkum þorski, ýsa og ufsa var hátt. Góð sala var á uppsjávarafurðum og á fjórðungnum var innleyst afkoma vegna framleiðslu fyrri tímabila.
Ávöxtun á bókfært eigið fé félagsins síðustu 12 mánuðum er 19,5% í samanburði við 10,2% á sama tímabili 2024-2025.
Kaup Brims á Lýsi eru endanlega frágengin. Marka þau tímamót í rekstri félagsins og mun Brim færa sig lengra í virðiskeðju sjávarafurða á næstu misserum. Það eru spennandi tímar framundan fyrir félagið og með þessum kaupum skapast tækifæri á framleiðslu á nýjum vörum sem boðnar eru á nýjum mörkuðum sem félagið hefur ekki áður starfað á. Markmið viðskiptanna eru m.a. að auka virði afla Brims og skapa ný tækifæri með þeirri þekkingu og þeim mannauði sem Lýsi býr að. Þá styrkjast fjárhagsstoðir Lýsis og öflun aðfanga verða tryggari sem skapa möguleika á að auka framleiðslu og verðmætasköpun Lýsis. Ný stoð verður til í rekstri Brims og mun þessi fjárfesting þegar fram líða stundir auka framlegð rekstrar og hagnað félagsins. Í mínum huga skapa kaupin á Lýsi mikil tækifæri fyrir Brim til að þróa og auka úrvinnslu og verðmætasköpun á því góða og heilnæma sjávarfangi sem bátar og skip færa að landi.
Brim gekk frá samkomulagi um sölu á Polar Seafood Denmark í lok maí 2026. Öllum fyrirvörum hefur verið aflétt og verður söluverðið greitt í september.
Nú sem endranær tekst Brim á við þau skilyrði og aðstæður sem náttúran, lög og erlendir markaðir móta. Brim mun halda áfram að skapa sína eigin framtíð. Hver er sinnar gæfu smiður. Það gildir um Brim sem og um okkur öll.”
Starfsemin á 2F2026
Afli bolfiskskipa félagsins var á tímabilinu 10.240 tonn en var 12.000 tonn á sama tímabili árið áður. Brim gerði út fimm skip á bolfiskveiðar á tímabilinu, en þau voru sjö fyrir ári síðan. Veiðar á ýsu jukust en veiðar minnkuðu á gulllaxi og þorski. Botnfiskafli til landvinnslu var um 5.350 tonn, en var 5.600 tonn á sama tímabili árið áður.
Verð á ferskum landunnum bolfiskafurðum eru góð og hafa haldið áfram að hækka frá fyrra ári sérstaklega þorsk- og ufsaafurðir á meðan karf- og ýsuafurðir hafa hækkað minna á tímabilinu. Verð á sjófrystum ufsaafurðum hefur hækkað nokkuð milli ára en afurðaverð á þorski, ýsu og karfa hafa verið nokkuð stöðug og er sögulega hátt.
Á öðrum ársfjórðungi var allur uppsjávarafli Brims kolmunni veiddur í færeyskri fiskveiðilögsögu. Fyrsta löndun var um miðjan apríl og sú síðasta snemma í maí. Venus og Víkingur tóku þátt í veiðunum og var landað bæði á Vopnafirði og Akranesi. Samtals veiddust um 14.500 tonn.
Rekstur
Seldar vörur námu á 2F 2026 119,3 m€ samanborið við 82,4 m€ á 2F 2025.
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var 25,5 m€ eða 21,4% af rekstrartekjum, en var 12,1 m€ eða 14,6% árið áður.
Fjármagnsgjöld og fjáreignatekjur voru jákvæð um 0,6 m€ á 2F 2026 en voru neikvæð um 6,0 m€ á 2F 2025. Áhrif hlutdeildarfélaga námu 1,6 m€ á 2F 2026 en voru 3,0 m€ á 2F 2025.
Hagnaður fyrir tekjuskatt 2F nam 22,6 m€, samanborið við 3,7 m€ á 2F 2025. Tekjuskattur fyrir sama tímabil nam 3,8 m€, en var 0,4 m€ árið áður. Hagnaður 2F varð því 18,7 m€ en var 3,2 m€ á 2F 2025.
Efnahagur
Heildareignir félagsins námu 956 m€ í lok 2F 2026. Þar af voru fastafjármunir 777 m€ og veltufjármunir 179 m€.
Fjárhagsstaða félagins er áfram sterk og nam eigið fé 482 m€ og var eiginfjárhlutfall 50,3%, en var 52,2% í lok árs 2025. Lækkun eiginfjárhlutfalls má rekja til kaupa á eigin bréfum í tengslum við yfirtökuna á Lýsi hf. Heildarskuldir félagsins voru 474 m€ í lok fjórðungsins og lækkuðu um 2 m€ frá áramótum.
Sjóðstreymi
Handbært fé frá rekstri nam 50 m€ á fyrri helmingi ársins, en var 26 m€ á fyrri helmingi ársins 2025. Fjárfestingar-hreyfingar voru neikvæðar um 39 m€ en voru jákvæðar um 5 m€ árið áður. Fjármögnunarhreyfingar voru neikvæðar um 45 m€. Áhrif gengisbreytinga voru jákvæð um 0,8 m€. Yfirtekið handbært fé nam 11 m€. Handbært fé lækkaði því um 22 m€ og var tæpar 50 m€ í lok tímabilsins.
Meginniðurstöður færðar til íslenskra króna
Séu niðurstöður rekstrarreiknings reiknaðar til íslenskra króna á meðalgengi fyrra árshelmings árins 2026 (1 evra = 144,41 ísk) voru tekjur 34,8 ma. króna, EBITDA 8,6 ma. og hagnaður 6,2 ma. Séu niðurstöður efnahagsreiknings reiknaðar til íslenskra króna á gengi 30. júní 2026 (1 evra = 144 ísk) voru eignir samtals 137,7 milljarðar króna, skuldir 68,3 milljarðar og eigið fé 69,4 milljarðar.
Hluthafar
Lokaverð hlutabréfa 30. júní 2026 var 89,5 kr. á hlut og var markaðsvirði félagsins þá 164 milljarðar króna. Fjöldi hluthafa var 1.590.
Samþykkt árshlutareiknings
Árshlutareikningurinn var samþykktur á stjórnarfundi Brims hf. 27. ágúst 2026. Árshlutareikningurinn er í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS – International Financial Reporting Standards).
Kynningarfundur þann 27. ágúst 2026
Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta verður haldinn fimmtudaginn 27. ágúst klukkan 16:30 í höfuðstöðvum Lýsis að Fiskislóð 5-9. Guðmundur Kristjánsson forstjóri félagsins kynnir uppgjör fjórðungsins og svarar spurningum. Fundinum verður jafnframt streymt og hægt verður að fylgjast með honum á www.brim.is/streymi. Velkomið er að senda spurningar fyrir fundinn eða á meðan fundi stendur á netfangið fjarfestatengsl@brim.is. Aðsendum spurningum verður svarað í lok fundar.
Brim hf.
Brim er öflugt sjávarútvegsfyrirtæki sem starfar í sátt við samfélagið og umhverfið. Við stuðlum að verðmætasköpun í sjávarútvegi með vöruþróun, tæknilausnum og öflugu starfsfólki. Við tryggjum með ábyrgum veiðum og vinnslu, þar sem áhersla er á sjálfbærni og nýsköpun, að sjávarútvegur verði áfram burðarstólpi í íslensku samfélagi. Við leitum allra leiða til að lágmarka áhrif starfseminnar á umhverfið hvort sem er á sjó eða í landi.
Fjárhagsdagatal
Þriðji ársfjórðungur 19. nóvember 2026
Fjórði ársfjórðungur 25. febrúar 2027
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Kristjánsson forstjóri, sími 550-1000.
Viðhengi
