Þann 12. mars 2026 var tilkynnt um undirritun Sýnar hf. (Sýn) og Ása hf. (Ása) á skilmálaskjali um kaup Ása á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar. Frestur samkvæmt skilmálaskjalinu til að ljúka gerð endanlegs kaupsamnings og annarrar nauðsynlegrar skjalagerðar er nú liðinn án þess að kaupsamningur hafi verið undirritaður. Samkomulag um einkarétt Ása til samningaviðræðna er þar með fallið niður og samningaviðræðum lokið.
Sýn hefur uppfyllt forsendur skilmálaskjalsins, þar á meðal forsendur fyrir umsömdu kaupverði er lúta að tekjum og rekstrarafkomu einingarinnar.
Vefmiðlar og útvarpsstöðvar félagsins eru öflugar einingar í góðum rekstri og munu áfram styðja við kjarnastarfsemi þess.
Niðurstaðan hefur engin áhrif á útgefna afkomuspá félagsins fyrir árið 2026.
