Áframhaldandi vöxtur og lykilmælikvarðar styrkjast
Sýn hf. birtir í dag uppgjör fyrir annan ársfjórðung og fyrri helming ársins 2026 sem endurspeglar áframhaldandi vöxt í kjarnastarfsemi og bætta rekstrarafkomu. Heildartekjur á öðrum ársfjórðungi námu 5.559 m.kr. og jukust um 2,8% milli ára. Leiðrétt fyrir áhrifum af Sendafélaginu nam tekjuvöxturinn 5,5%. Vöxtur á fjórðungnum var einkum borinn uppi af kjarnastarfsemi félagsins. Tekjur af fjölmiðlun jukust um 12,3% milli ára, auglýsingasala um 9,1%, farsímatekjur um 7,0% og internettekjur um 2,1%.
Samhliða tekjuvexti hefur áframhaldandi kostnaðaraðhald og aukin skilvirkni í rekstri skilað sér í lægri kostnaðargrunni og sterkari lykilmælikvörðum. Heildarrekstrarkostnaður lækkar um 2,3% milli ára, þrátt fyrir 93 m.kr. kostnaðarauka vegna breytts rekstrarfyrirkomulags á Sendafélaginu. Laun og launatengd gjöld lækka um 3,1%, þrátt fyrir kjarasamningsbundnar hækkanir, og annar rekstrarkostnaður lækkar um 8,4% í krefjandi efnahagsumhverfi.
EBITDAaL nam 995 m.kr. á öðrum ársfjórðungi og hækkar um 39,0% frá sama tímabili í fyrra. Fjárfestingar námu 691 m.kr. og EBITDAaL að frádregnum fjárfestingum nam 305 m.kr., samanborið við 92 m.kr. á öðrum ársfjórðungi 2025.
Handbært fé frá rekstri á 2F 2026 nam 871 m.kr. samanborið við 481 m.kr. á 2F 2025 og hækkar um 390 m.kr. milli ára.
Samningaviðræðum við Ása hf. um kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar lauk í ágúst án þess að endanlegur kaupsamningur væri undirritaður. Vef- og útvarpsmiðlar félagsins verða því áfram hluti af rekstri Sýnar. Um er að ræða öflugar einingar í góðum rekstri sem búa yfir miklum möguleikum til áframhaldandi vaxtar og verðmætasköpunar. Þær munu því áfram styðja við kjarnastarfsemi félagsins. Niðurstaðan hefur engin áhrif á útgefna afkomuspá félagsins fyrir árið 2026.
Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri:
„Fyrri árshelmingur 2026 staðfestir áframhaldandi jákvæðan viðsnúning í rekstri Sýnar. EBITDAaL jókst um 42% á milli ára og nam 1.837 m.kr. Lykilmælikvarði félagsins, EBITDAaL að frádregnum fjárfestingum, nam 310 m.kr. samanborið við 192 m.kr. á sama tímabili í fyrra, þrátt fyrir umtalsvert meiri fjárfestingar í sýningarréttum.
Kjarnastarfsemin heldur áfram að vaxa. Leiðrétt fyrir áhrifum af Sendafélaginu jukust tekjur um 6% á fyrri árshelmingi, þar sem fjölmiðlun, auglýsingasala og farsími leiddu vöxtinn. Fjölmiðlastarfsemin vex um 13% á milli ára, en hún stafar aðallega af Enska boltanum og fjölgun sjónvarpsáskrifta. Afskriftir sýningarrétta setja mark sitt á afkomu eftir skatta og skýra að tap annars ársfjórðungs jókst á milli ára, en undirliggjandi rekstur heldur áfram að styrkjast og tap fyrri árshelmings dregst saman frá sama tíma í fyrra.
Á sama tíma höldum við áfram að einfalda reksturinn. Launakostnaður lækkar um 4,6% á milli ára og stöðugildi voru 367 í lok tímabilsins samanborið við 414 fyrir ári. Fjárhagsstaðan styrkist jafnt og þétt; handbært fé frá rekstri jókst um 45% á milli ára og hreinar vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindinga hafa lækkað um rúman milljarð frá áramótum. Félagið hefur því aukið svigrúm til að fjárfesta í kjarnastarfseminni.“
Fjárhagsdagatal:
Frekari upplýsingar
Viðhengi
