Reykjavík, 10. september 2026
Stjórn Styrkás hf. samþykkti á fundi sínum í dag, 10. september 2026, árshlutareikning samstæðunnar fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2026. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við IAS 34 og hefur verið kannaður af endurskoðanda félagsins, KPMG ehf.
Helstu niðurstöður 1. janúar – 30. júní 2026:
Rekstur tímabilsins:
Hreinsitækni ehf. og HRT þjónusta ehf. urðu hluti af samstæðunni frá 1. janúar 2026. Skeljungur ehf. lauk kaupum á öllu hlutafé í Gallon ehf. þann 31. maí 2026, en félagið varð hluti af samstæðunni frá 1. júní 2026.
Þjónustutekjur samstæðunnar jukust um 10% á milli ára og leigutekjur um 13%. Sölutekjur voru hins vegar undir áætlun á tímabilinu sem skýrist af því að afhending seldra tækja sem áætluð var á fyrri árshelmingi færist yfir á þann síðari.
Orka og efnavara (Skeljungur)
Afkoma sviðsins var umfram áætlun þrátt fyrir að sveiflur í olíuverði hafi hækkað kostnað við áhættuvarnir og aukið fjárbindingu. Eldsneytisframlegð var í samræmi við áætlun og hefur Skeljungur brugðist við auknum sveiflum með því að minnka birgðastöðu og auka kostnaðaraðhald. Sviðið tók jafnframt við rekstri Gallon ehf. frá 1. júní 2026.
Tæki og búnaður (Klettur)
Pantanabók í sölu tækja og búnaðar er sterk og inniheldur nú þegar nær alla áætlaða sölu ársins, en stórir afhendingarmánuðir eru framundan á síðari hluta ársins. Afkoma á fyrri hluta árs var undir áætlun sem skýrist af töfum í afhendingum sem færast yfir á síðari árshelming, en afkoma dekkjasviðs er í takti við áætlun. Sameiginleg starfstöð samstæðunnar að Goðanesi á Akureyri var opnuð fyrr á árinu, þar sem þungamiðjan er nýtt þjónustuverkstæði Kletts og verslun Skeljungs.
Eignaumsýsla og leigustarfsemi (Stólpi)
Sviðið skilaði afkomu umfram áætlun á fyrstu sex mánuðum ársins. Sölupípa er sterk og lauk félagið fyrsta áfanga vinnubúða vegna Hvammsvirkjunar, en nú er unnið að uppsetningu vinnubúða í Sigöldu fyrir Landsvirkjun. Smiðju-, kæli- og trésmíðaþjónusta, ásamt gámasölu, hefur verið sameinuð á einn stað í Sægörðum.Verkefnastaða er góð en enn er unnið að umbótaverkefnum.
Umhverfi og iðnaður (Hreinsitækni og HRT þjónusta)
Verkefnastaða er í takti við áætlun en tíðarfar hafði neikvæð áhrif á afkomu framan af árinu, auk þess sem verkefni við fóðrun lagna hafa verið undir væntingum. Stjórnendur telja að frávikið muni að stórum hluta vinnast upp á síðari árshelmingi. Samþætting félaganna hefur gengið vel en félögin urðu huti af samstæðu Styrkás þann 1. janúar sl.
Árstíðarsveifla er í rekstri samstæðunnar og er veltufjárbinding í hámarki yfir sumartímann, sem endurspeglast í sjóðstreymi tímabilsins.
Fjármögnun
Þann 27. janúar 2026 gaf félagið út skuldabréf að fjárhæð 1,7 ma.kr. í flokknum STYRK 300125. Báðir skuldabréfaflokkar félagsins, STYRK 300125 og STYRK 27 1015, voru teknir til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. þann 24. júní 2026.
Atburðir eftir reikningsskiladag
Þann 2. júlí 2026 var undirritaður samningur við Landsbankann um endurfjármögnun á öllum bankalánum samstæðunnar. Langtímalán að fjárhæð 6 ma.kr. voru endurfjármögnuð til fimm ára með einni höfuðstólsafborgun á lokagjalddaga, auk lánalínu vegna rekstrarfjármögnunar. Breytt afborgunarferli og bætt fjármögnunarkjör er áætlað að skili samstæðunni um 400 m.kr. í auknu sjóðstreymi á ári. Sömu fjárhagslegu skilyrði gilda um bankalánin og um skráð skuldabréf félagsins.
Horfur
Afkomuhorfur Styrkás fyrir árið 2026 eru óbreyttar frá því sem áður hefur verið birt. Gert er ráð fyrir að rekstrarhagnaður eftir afskriftir (EBIT) samstæðunnar árið 2026 verði á bilinu 3.350–3.650 m.kr., án áhrifa Gallon.
Um birtingu
Tilkynning þessi er birt á grundvelli laga nr. 20/2021 um upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu, laga nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum og reglna Nasdaq Iceland hf. fyrir útgefendur skuldabréfa.
Árshlutareikning samstæðunnar má jafnframt finna á vef Styrkás: https://www.styrkas.is/fjarhagsupplysingar
Um Styrkás hf.
Styrkás hf. er rekstrarfélag stofnað árið 2022. Dótturfélög Styrkás eru Skeljungur, Klettur, Stólpi og Hreinsitækni, sem saman mynda samstæðu félagsins.
Styrkás er leiðandi þjónustufyrirtæki á fyrirtækjamarkaði með styrk til að þjónusta innviða- og atvinnuvegafjárfestingu á Íslandi. Markmið félagsins er að byggja ofan á sterkar stoðir með innri og ytri vexti á fjórum kjarnasviðum: orku og efnavöru, tækjum og búnaði, eignaumsýslu og leigustarfsemi og umhverfis- og iðnaðarþjónustu. Styrkás Fasteignir heldur utan um fasteignir og lóðir samstæðunnar, samtals um 3 þúsund fermetrar af fasteignum og 68 þúsund fermetrar af lóðum.
Rekstrarhagnaður Styrkás samstæðunnar eftir afskriftir (EBIT) er áætlaður á bilinu 3.350–3.650 milljónir króna árið 2026. Stjórn Styrkás hefur ákveðið að hefja undirbúning að skráningu félagsins í Nasdaq OMX kauphöllina á Íslandi, með það að markmiði að félagið verði skráð á öðrum ársfjórðungi 2027.
Nánari upplýsingar veitir: Ásmundur Tryggvason, forstjóri Styrkás, asmundur@styrkas.is