Í 28. viku 2026 keypti SKEL 1.484.421 eigin hluti að kaupverði alls kr. 25.675.846 eins og hér segir:
| Vika | Dagsetning | Tími | Magn | Verð | Kaupverð | Eigin hlutir |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Vika 28 | 6.7.2026 | 15:08 | 30.231 | 17,10 | 516.950 | 3.766.810 |
| Vika 28 | 8.7.2026 | 13:39 | 480.000 | 17,10 | 8.208.000 | 4.246.810 |
| Vika 28 | 9.7.2026 | 13:10 | 474.190 | 17,40 | 8.250.906 | 4.721.000 |
| Vika 28 | 10.7.2026 | 14:06 | 500.000 | 17,40 | 8.700.000 | 5.221.000 |
Kaupin eru í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd á grundvelli heimildar aðalfundar SKEL fjárfestingafélags hf. þann 5. mars 2026, sbr. tilkynningu til markaðarins 28. apríl 2026. Gert er ráð fyrir að félagið kaupi eigin hluti innan þeirra marka sem aðalfundur heimilaði, þó þannig að heildarfjárhæð endurkaupanna fari ekki umfram fyrirfram ákveðið hámark miðað við kaupverð. Endurkaup munu standa yfir þar til öðru hvoru framangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð er náð, nema þeim verði hætt fyrr samkvæmt ákvörðun félagsins.
SKEL hefur nú keypt samtals 5.221.000 eigin hluti í félaginu að kaupverði kr. 86.695.019 eða 0,28% af heildarhlutafé félagsins, sem er 1.878.479.032.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við heimild aðalfundar, lög um hlutafélög nr. 2/1995 og lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021, sbr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 596/2014 um markaðssvik og framselda reglugerð nr. 2016/1052 um tæknilega staðla og skilyrði endurkaupaáætlana.