15. júlí 2026
Tryggingarekstur áfram sterkur
Erfitt árferði á mörkuðum litar afkomu af fjármálastarfsemi og fjárfestingum
Afkoma 2F og 1H 2026 hjá samstæðu Skaga hf.
Helstu lykiltölur 2F 2026
Samstæðan
Tryggingastarfsemi
Fjármálastarfsemi
Fjárfestingar
Helstu lykiltölur 1H 2026
Haraldur I. Þórðarson, forstjóri:
„Rekstur samstæðunnar á öðrum ársfjórðungi einkenndist af góðum árangri í bland við áskoranir. Afkoma af grunnrekstri dróst lítillega saman frá fyrra ári þrátt fyrir áframhaldandi góðan takt í tryggingastarfseminni þar sem neikvæð afkoma af fjármálastarfseminni á tímabilinu vó þar á móti. Á ársfjórðungnum komu skipulagsbreytingar til framkvæmda í kjölfar stefnurýni félagsins, þar sem áhersla er lögð á einföldun og kostnaðarhagræði. Hagræðingaraðgerðir þeim tengdar höfðu í för með sér nokkurn kostnað sem gjaldfærður var að fullu á tímabilinu. Horft fram á veginn skila þessar aðgerðir sér í lægri kostnaði sem nemur um 300 m.kr. á ársgrundvelli og leggja grunn að auknu hagræði af rekstri samstæðunnar. Afkoma fjárfestinga var undir markmiðum og viðmiði á ársfjórðungnum sem skýrist að mestu af neikvæðri ávöxtun bæði skráðra og óskráðra hlutabréfa.
Afkoma af tryggingastarfsemi var áfram sterk á öðrum ársfjórðungi og á fyrri helming ársins var samsett hlutfall það lægsta síðan árið 2007. Þessi árangur endurspeglar öflugan undirliggjandi rekstur, góðan og arðbæran iðgjaldavöxt og markvissa áherslu á rekstrahagkvæmni. Þá voru einnig jákvæðar matsbreytingar vegna hagstæðrar þróunar fyrri ára. Horfur félagsins hafa verið uppfærðar í kjölfar betri þróunar en áður var gert ráð fyrir. Tekjuvöxtur hefur verið kröftugur síðustu ár og hefur viðskiptavinum VÍS fjölgað jafnt og þétt. Þá hafa allir helstu þjónustu- og ánægjumælikvarðar þróast í rétta átt en VÍS leggur ríka áherslu á framúrskarandi þjónustu og að styrkja enn frekar tengslin við viðskiptavini um allt land. Þessi árangur staðfestir enn og aftur að sú stefna sem félagið hefur markað er að skila árangri.
Fjárfestingartekjur námu 396 m.kr. á ársfjórðungnum sem jafngildir 0,8% ávöxtun fjárfestingasafns samanborið við 1,4% hækkun viðmiðunarvísitölu. Skuldabréf skiluðu 685 m.kr. en þar munar mest um ávöxtun fyrirtækjaskuldabréfa. Óskráð hlutabréf drógu niður afkomu ársfjórðungsins en eignaflokkurinn lækkaði um 220 m.kr. eða 3,1%. Virði eignarhlutar í Annata lækkaði að fjárhæð 286 m.kr., en eignarhlutur félagsins er í gegnum sjóði á vegum VEX og lækkaði rekstrarfélagið virðismat á félaginu á ársfjórðungnum. Skráð hlutabréf skiluðu neikvæðri afkomu að fjárhæð 89 m.kr. eða -1,2% ávöxtun en þar hafði lækkun á virði Oculis mest áhrif á afkomu skráðra hlutabréfa eða samtals 356 m.kr. á öðrum ársfjórðungi. Á fyrri hluta ársins námu fjárfestingartekjur 762 m.kr. eða 1,5% ávöxtun samanborið við 0,6% ávöxtun viðmiðunarvísitölu. Afkoma fjárfestinga, að teknu tilliti til fjármagnsliða vátrygginga, var neikvæð um 396 m.kr. á fyrri hluta ársins. Áfram var dregið úr vægi hlutabréfa en í lok tímabilsins nam vægi hlutabréfa 27% en skuldabréfa 73%.
Annar ársfjórðungur var undir væntingum í fjármálastarfseminni, og drógust tekjur saman um tæplega 9% frá sama tímabili árið áður. Samdrátturinn skýrist einkum af lægri þóknanatekjum hjá Fossum í markaðsviðskiptum og fyrirtækjaráðgjöf ásamt neikvæðum fjármunatekjum. Horfur varðandi tekjur í fjármálastarfsemi fyrir árið hafa verið uppfærðar í ljósi þessarar þróunar. Afkoma Fossa var neikvæð um 146 m.kr. eftir skatt á öðrum ársfjórðungi. Auk samdráttar í þóknanatekjum skýrist afkoman af kostnaði vegna forstjóraskipta og starfsmannabreytinga að fjárhæð 75 m.kr., auk neikvæðrar þróunar fjármunatekna. Á ársfjórðungnum jukust tekjur Íslenskra verðbréfa um 35% frá fyrra ári og var afkoma félagsins 55 m.kr. eftir skatt. Tekjur félagsins námu 499 m.kr. á fyrri helmingi ársins og jukust um 24% frá fyrra ári. Afkoma Íslenskra verðbréfa var 37 m.kr. eftir skatt á fyrri árshelmingi samanborið við 18 m.kr. tap eftir skatt á sama tímabili í fyrra. Eignir í stýringu í fjármálastarfsemi námu 251 ma.kr. sem samsvarar 8,3% vexti á milli ára.
Á fyrri helmingi ársins skilaði félagið hluthöfum samtals um 1.792 m.kr. í gegnum endurkaup eigin bréfa og arðgreiðslur. Þrátt fyrir þessar útgreiðslur er eiginfjárstaða félagsins áfram sterk og gjaldþolshlutfall samstæðu um 1,3 í lok tímabilsins, að teknu tilliti til fyrirséðra arðgreiðslna samkvæmt arðgreiðslustefnu. Félagið býr því áfram yfir sterkri eiginfjárstöðu sem styður við áform um framtíðarvöxt og áframhaldandi arðsemi.”
Uppfærðar horfur í rekstri Skaga
Rekstrarhorfur Skaga fyrir árið 2026 voru settar fram í upphafi árs en uppfærðar þann 10. júlí sl. Rekstrarhorfur eru nú sem hér segir1:
Kynningarfundur
Kynningarfundur vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 15. júlí, klukkan 16:00 í höfuðstöðvum félagsins í Ármúla 3, Reykjavík. Haraldur I. Þórðarson, forstjóri Skaga, mun kynna uppgjörið. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi og nálgast má upptöku af honum á fjárfestasíðu félagsins. Þar verður einnig hægt að nálgast kynningarefni fundarins.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Haraldur I. Þórðarson, forstjóri Skaga, í netfanginu haraldur@skagi.is.
1 Upplýst verður um afkomuhorfur í trygginga- og fjármálastarfsemi ef þær breytast frá þeim vikmörkum sem kynntar eru.
2 Hreinar fjármálatekjur eru allar tekjur í fjármálastarfsemi, þ.m.t. hreinar vaxta- og þóknanatekjur, fjármunatekjur og aðrar tekjur.
3 Um er að ræða áætlaða ávöxtun fjárfestingareigna VÍS. Ekki verður upplýst um frávik frá áætlaðri ávöxtun fjárfestingareigna. Félagið birtir upplýsingar um stærstu eignir í fjárfestingarstarfsemi í fjárfestakynningum ársfjórðungslega. Hafa skal í huga að heildarstærð fjárfestingarsafnsins getur tekið breytingum vegna verðbreytinga, arðgreiðslna, endurkaupa, tilfærslu á ráðstöfun fjármagns innan samstæðu o.fl.
Viðhengi
