Drög að uppgjöri fyrri árshelmings ársins 2026 benda til þess að samsett hlutfall í tryggingastarfsemi VÍS á tímabilinu sé 90,4% sem er betra en áætlanir gerðu ráð fyrir. Í áður birtum rekstrahorfum fyrir árið 2026 í heild var áætlað að samsett hlutfall yrði á bilinu 92-95% með markmið um að vera undir 93,5%. Með vísan til þessa telur félagið rétt að uppfæra rekstrarhorfur í tryggingastarfsemi þannig að áætlað er að samsett hlutfall ársins verði á bilinu 90-93% með markmið um að vera undir 91,5%.
Áhrifaþættir á samsett hlutfall fyrri árshelmings eru m.a. eftirfarandi:
Samkvæmt drögum að uppgjöri er ávöxtun fjárfestingareigna 1,5% á fyrri árshelmingi.
Þá telur félagið rétt að uppfæra áður birtar rekstrarhorfur um tekjur í fjármálastarfsemi. Í áður birtum rekstrarhorfum var áætlað að tekjur í fjármálastarfsemi myndu nema á bilinu 3.300-3.800 m.kr. á árinu 2026. Með vísan til draga að uppgjöri fyrri árshelmings ársins 2026 telur félagið að horfur séu á því að tekjur í fjármálastarfsemi muni nema á bilinu 2.700-3.200 m.kr. á árinu og nýtt markmið sett um að tekjur verði >2.900 m.kr. á árinu. Helstu áhrifaþættir á afkomu í fjármálastarfsemi eru:
Vinna við árshlutauppgjör er enn í gangi og því geta lykiltölur tekið smávægilegum breytingum fram að birtingu. Útlit er fyrir að afkoma samstæðunnar á tímabilinu nemi u.þ.b. 700 m.kr. fyrir skatt saman borið við neikvæða afkomu upp á 104,3 m.kr. á sama tímabili síðasta árs. Uppgjör fyrri árshelmings 2026 verður birt þann 15. júlí n.k. og fjárfestakynning verður haldin í höfuðstöðvum félagsins að Ármúla 3 kl. 16:00 þann sama dag.
Frekari upplýsingar veitir: Haraldur I. Þórðarson, forstjóri félagsins. Netfang: haraldur@skagi.is.
Þessi tilkynning inniheldur upplýsingar sem töldust eða kunna að hafa talist innherjaupplýsingar í skilningi 7. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR), sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum.
