Í 38. viku 2026 keypti Skagi 216.000 eigin hluti fyrir kr. 3.844.800 eins og hér segir:
| Vika | Dags | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr.) | Eigin hlutir eftir viðskipti |
| Vika 38 | 14.9.2026 | 10:41 | 110.000 | 17,80 | 1.958.000 | 80.552.000 |
| Vika 38 | 15.9.2026 | 09:49 | 106.000 | 17,80 | 1.886.800 | 80.658.000 |
| Samtals | 216.000 | 3.844.800 |
Kaupin eru í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd 20. júlí, sbr. tilkynningu á markað 17. júlí 2026. Þessari umferð endurkaupa er nú lokið. Samkvæmt framangreindri tilkynningu var áætlað er að kaupa allt að 25 milljón hluti að nafnvirði, sem jafngildir um 1,29% af útgefnu hlutafé félagsins, sem er nú kr. 1.940.311.770 að nafnvirði. Heildarfjárhæð endurkaupanna yrði þó aldrei hærri en 350 milljónir króna. Endurkaupin hófust 20. júlí sl. og gert var ráð fyrir að endurkaupum myndi ljúka í síðasta lagi við lokun markaða 15. september 2026, eða fyrr, ef skilyrði um hármarkskaup væru uppfyllt fyrir þá dagsetningu.
Endurkaupum samkvæmt áætluninni er nú lokið en Skagi hefur keypt samtals 8.165.036 hluti í félaginu sem samsvarar 32,7% af þeim eigin hlutum sem að hámarki var heimilt að kaupa samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 153.320.538. Skagi á nú samtals 80.658.000 hluti eða 4,16% af heildarhlutafé félagsins.
Framkvæmd endurkaupaáætlunar var í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021, sbr. 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 596/2014 um markaðssvik, sbr. framselda reglugerð nr. 2016/1052 um tæknilega staðla og skilyrði endurkaupaáætlana.
Frekari upplýsingar veitir:
Álfhildur Pálsdóttir, með tölvupósti á fjarfestatengsl@skagi.is