Helstu niðurstöður úr rekstri á 2F 2026
1 12M EBITDA er leiðrétt fyrir 77 m.kr. gjaldfærslu vegna dómsmála.
María Björk Einarsdóttir, forstjóri:
„Afkoma annars ársfjórðungs er ásættanleg, þó við hefðum viljað sjá hana sterkari. Tekjur af fjarskiptum hækkuðu lítillega milli ára, en tekjur af sjónvarpsþjónustu drógust aðeins saman. Kröftugur vöxtur var í auglýsingamiðlun, en sala í tengslum við sveitarstjórnarkosningar gekk vonum framar, bæði í Sjónvarpi Símans og á umhverfismiðlaneti Billboard.
Eins og hjá öðrum fyrirtækjum og heimilum í landinu hafa viðvarandi verðbólguþrýstingur og kostnaðarhækkanir á breiðum grunni sett mark sitt á afkomuna. Á fjórðungnum var því gripið til markvissra hagræðingaraðgerða í grunnrekstri Símans sem munu byrja að skila sparnaði á síðari árshelmingi og styðja við fjárhagsleg markmið félagsins.
Þrátt fyrir að ytri aðstæður séu um margt krefjandi höldum við ótrauð áfram metnaðarfullri umbreytingu samstæðunnar. Markmiðið er að innleysa umtalsverð samlegðartækifæri auk þess að treysta grunninn fyrir framtíðarvöxt og enn betri nýtingu innviða. Eignarhaldsfélagið Ásar tók þannig formlega til starfa 1. júlí og sama dag varð Greiðslumiðlun Íslands hluti samstæðunnar.
Í júlí voru öll bankalán samstæðunnar endurfjármögnuð af Landsbankanum til næstu fimm ára. Um leið tryggðum við okkur aðgang að frekara fjármagni til vaxtar, en heildarfjárhæð fjármögnunarinnar er 31 milljarður króna. Með endurfjármögnuninni tryggjum við okkur hagstæð kjör og skilmála til viðbótar við aukinn sveigjanleika sem hentar vel í vaxtarfasa næstu ára.
Við hækkum afkomuspá okkar vegna innkomu Greiðslumiðlunar Íslands. Samhliða lækkum við fjárfestingarspá ársins um 200 milljónir, en minni fjárfestingarþörf má meðal annars þakka hagnýtingu gervigreindar sem bætir skilvirkni í hugbúnaðarþróun, auk hagstæðari samninga um kaup á sjónvarpefni. Tækifæri eru til að nýta gervigreind á fleiri sviðum starfseminnar með tilheyrandi rekstrarábata, en það er ein af lykiláherslum félagsins á komandi misserum.“
Kynningarfundur 20. ágúst 2026
Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn fimmtudaginn 20. ágúst 2026 kl. 8:30 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Hluthafar, fjárfestar og markaðsaðilar eru sérstaklega boðnir velkomnir á fundinn. Á fundinum munu María Björk Einarsdóttir forstjóri og Hjörtur Þór Steindórsson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum.
Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast í fréttakerfi Nasdaq Iceland og á heimasíðu Símans.
Jafnframt verður hægt að fylgjast með fundinum í beinu streymi.
Þeir sem vilja bera upp spurningar geta sent þær á fjarfestatengsl@siminn.is og verður þeim svarað í lok fundarins.
Nánari upplýsingar um uppgjörið veita:
María Björk Einarsdóttir, forstjóri Símans (maria@siminn.is)
Hjörtur Þór Steindórsson, fjármálastjóri Símans (hjortur.steindorsson@siminn.is)
Viðhengi