Meðfylgjandi eru tilkynningar um viðskipti stjórnenda og viðskipti aðila sem er nákomin stjórnanda Síldarvinnslunnar hf. á grundvelli 19. gr. MAR reglugerðarinnar.
Samkvæmt tilkynningum kemur fram að um sé að ræða afhendingu hlutabréfa í Síldarvinnslunni hf. frá Hraunlóni ehf. til Axels Ísakssonar, fjármálastjóra Síldarvinnslunnar hf. og til Jóns Más Jónssonar, fyrrverandi yfirmanns landvinnslu í Síldarvinnslunni. Er afhending gerð í tengslum við uppgjör hluthafa í Hraunlóni ehf. og lækkun hlutafjár því samfara. Eftir uppgjör verður Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar hf., einn hluthafi í félaginu Hraunlóni ehf. sem á þá 8.899.243 hluti í Síldarvinnslunni hf. eða sem nemur um 0,48 % eignarhlut. Axel Ísaksson, fjármálastjóri Síldarvinnslunnar hf. mun eftir uppgjörið eiga 2.171.143 hluti í Síldarvinnslunni í eigin nafni.
Viðhengi
