Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag, 27. ágúst 2026, útgáfuáætlun Reykjavíkurborgar fyrir seinni hluta ársins 2026.
Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag, 27. ágúst 2026, útgáfuáætlun Reykjavíkurborgar fyrir seinni hluta ársins 2026. Samkvæmt samþykktri fjárhagsáætlun fyrir árið 2026 er gert ráð fyrir að lántaka borgarsjóðs nemi allt að 14.000 m.kr. á árinu.
Lántakan verður framkvæmd með stækkun á virkum skuldabréfaflokkum borgarsjóðs, útgáfu á nýjum skuldabréfaflokkum, ádrætti á erlent lán frá CEB eða öðrum þeim hætti sem álitinn er hagkvæmur út frá markaðsaðstæðum hverju sinni. Með hliðsjón af lánastýringu kemur m.a. til greina að framkvæma skiptiútboð eða uppkaup á útistandandi skuldabréfaflokkum, endurgreiða lán frá viðskiptabönkum og gefa út nýja skuldabréfaflokka.
Skuldabréfaútboð Reykjavíkurborgar á seinni hluta ársins eru fyrirhuguð á eftirfarandi dögum:
Árið 2024 var undirritaður samningur við CEB um allt að EUR 100 milljóna fjármögnun á viðhaldsátaki í húsnæði grunnskóla, leikskóla og frístundar vegna fjárhagsáranna 2023-2028. Samtals hefur verið dregið á lánssamninginn að fjárhæð EUR 35 milljónir og vaxta- og gjaldmiðlaskiptasamningar gerðir fyrir sömu fjárhæð. Í samræmi við framvindu á viðhaldsátakinu og með tilliti til markaðsaðstæðna kemur til greina að draga á lán hjá CEB á þessu ári en eftirstöðvar lánsfjárhæðar nema EUR 65 milljónum.
Útgáfuáætlun er lögð fram til að auka fyrirsjáanleika á markaði en Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að bregða út af þessari áætlun, fella niður útboð og/eða bæta við útboðsdögum.
Niðurstöður hvers útboðs og tillögur verða lagðar fyrir borgarráð, daginn eftir útboð, til endanlegrar afgreiðslu og síðan kynntar opinberlega.
Nánari upplýsingar veitir:
Bjarki Rafn Eiríksson
Skrifstofa fjárstýringar og innheimtu
bjarki.rafn.eiriksson@reykjavik.is