Reykjavíkurborg hefur lokið útboði í skuldabréfaflokknum RVK 44 1.
Reykjavíkurborg hefur lokið útboði í skuldabréfaflokknum RVK 44 1.
Heildartilboð í RVK 44 1 voru samtals 2.375 m.kr. að nafnvirði á kröfubilinu 3,70%-3,85%. Ákveðið var að taka tilboðum, samtals að nafnvirði 2.150 m.kr., á ávöxtunarkröfunni 3,78%. Útistandandi fyrir útboð voru 16.443 m.kr. að nafnvirði, að meðtöldum eigin bréfum Reykjavíkurborgar vegna viðskiptavaktar 800 m.kr. Heildarstærð RVK 44 1 er nú 18.593 m.kr. að nafnverði.
Viðskiptavakar Reykjavíkurborgar, Arion banki, Fossar fjárfestingarbanki, Íslandsbanki, Kvika banki og Landsbanki, höfðu umsjón með útboðinu. Uppgjör viðskipta fer fram þriðjudaginn 6. október.
Nánari upplýsingar veitir:
Bjarki Rafn Eiríksson
skrifstofa fjárstýringar og innheimtu,
netfang: bjarki.rafn.eiriksson@reykjavik.is