Reykjastræti ehf., kt. 570516-0860, Lágmúla 7, 108 Reykjavík hefur birt grunnlýsingu í tengslum við útgáfuramma víxla og skuldabréfa. Grunnlýsingin er dagsett 24. september 2026 og hefur verið staðfest af Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands.
Grunnlýsingin er gefin út á íslensku og birt á vefsíðu félagsins https://www.reykjastraeti.is/fjarfestar.
Nánari upplýsingar um Reykjastræti ehf. og útgáfurammann má finna í framangreindri grunnlýsingu og á vefsíðu félagsins. Grunnlýsinguna má nálgast á vefsíðunni næstu tíu ár frá staðfestingu hennar.
Fossar fjárfestingarbanki hf. hafði umsjón með því ferli að fá grunnlýsinguna staðfesta hjá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands.
Nánari upplýsingar veita:
Ólafur Stefánsson, rekstrarstjóri, olafurs@reykjastraeti.is
Ólafur Þór Jóhannesson, stjórnarmaður, olafur@tgverk.is