Rekstur Reita á fyrri hluta ársins gekk vel og tekjur og rekstrarhagnaður eru umfram áætlanir félagsins. Leigutekjur árshlutans voru 9.884 millj. kr. sem er aukning um 12,7% milli ára eða sem nemur 7,4% umfram verðlag. Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu nam 6.593 millj. kr. og jókst þannig um 16,2% og heildarhagnaður var 1.567 millj. kr. Matshækkun fjárfestingareigna á fyrri árshelmingi nam 3.895 millj. kr., heildareignir samstæðunnar voru 268.847 millj. kr. og eigið fé 77.238 millj. kr. í lok júní sl.
5,4 milljarða króna innri vöxtur
Innri vöxtur félagsins í uppbyggingar- og þróunarverkefnum er umtalsverður eða 5,4 ma. kr. á fyrri hlut ársins. Stærstu verkefnin eru uppbygging á Hyatt hóteli við Laugaveg, umbreyting skrifstofuhúsnæðis við Nauthólsveg í hjúkrunarheimili og nýframkvæmdir á Korputúni.
Góður framgangur er í öllum verkefnum félagsins og dreifast þau vel eftir tegund húsnæðis og eru þar á meðal hótel, atvinnurými, íbúðir og hjúkrunarheimili. Nýr leigusamningur við Dranga um 5.500 fm. verslunarrými á Korputúni markaði lykiláfanga í þróun svæðisins sem er meðal umfangsmestu uppbyggingarverkefna félagsins.
Félagið hélt áfram að styrkja verkefnastöðu sína enn frekar með nýjum verkefnum og má þar helst nefna uppbyggingu hjúkrunarheimilis á Akureyri.
Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita:
„Fjárfesting í uppbyggingu og sterkur rekstur eru lykilstefin á fyrri árshelmingi þessa árs. Aukning rekstrarhagnaðar um 16,2% og raunvöxtur upp á 7,4% er afar góður árangur og er afrakstur af fjárfestingu undanfarna missera, endurnýjun stórra leigusamninga og stækkun eignasafnsins. Verkefnastaðan heldur áfram að styrkjast og það er afar jákvætt að sjá bæði fyrstu leigutakana koma inn í verkefni sem hafa verið í þróun um nokkurt skeið samhliða því að taka að okkur ný verkefni sem stuðla að aukinni tekjumyndun til lengri tíma.“
Lykiltölur uppgjörs fyrri árshelmings 2026:
| Lykiltölur rekstrar | 2026 1H | 2025 1H |
| Leigutekjur | 9.884 | 8.774 |
| Rekstrarkostnaður fjárfestingareigna | -2.717 | -2.564 |
| Stjórnunarkostnaður | -574 | -536 |
| Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu | 6.593 | 5.674 |
| Matsbreyting fjárfestingareigna | 3.895 | 3.604 |
| Hrein fjármagnsgjöld | -8.528 | -5.651 |
| Hagnaður og heildarhagnaður | 1.567 | 2.771 |
| Hagnaður á hlut | 2,3 | 4,0 |
| Lykiltölur efnahags | 30.6.2026 | 31.12.2025 |
| Fjárfestingareignir | 262.452 | 252.194 |
| Handbært og bundið fé | 2.659 | 1.167 |
| Heildareignir | 268.847 | 256.061 |
| Eigið fé | 77.238 | 79.099 |
| Vaxtaberandi skuldir | 134.487 | 132.096 |
| Eiginfjárhlutfall | 28,7% | 30,9% |
| Skuldsetningarhlutfall | 61,2% | 58,5% |
| Lykilhlutföll | 2026 1H | 2025 1H |
| Virkt nýtingarhlutfall | 96,7% | 97,9% |
| Nýtingarhlutfall allra eigna | 94,0% | 94,2% |
| Arðsemi tekjuberandi eigna | 5,7% | 5,4% |
| Rekstrarhagnaðarhlutfall | 63,1% | 61,4% |
| Rekstrarkostnaðarhlutfall | 26,0% | 27,8% |
| Stjórnunarkostnaðarhlutfall | 5,5% | 5,8% |
Horfur ársins
Horfur ársins hafa verið uppfærðar og stjórnendur félagsins gera núna ráð fyrir að leigutekjur ársins verið á bilinu 19.800-20.100 millj. kr. og að rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu nemi 13.200-13.500 millj. kr.
Að baki hækkun á horfum ársins er verðlagshækkun sem hefur verið kröftugari en upphafleg áætlun gerði ráð fyrir en auk þess hefur rauntekjuvöxtur verið góður.
Nánari upplýsingar og kynningarfundur
Kynningarfundur vegna uppgjörsins fer fram í streymi. Þar munu Guðni Aðalsteinsson, forstjóri, og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, kynna uppgjörið og svara spurningum. Fundurinn hefst klukkan 8:30 á morgun, þriðjudaginn 25. ágúst á slóðinni:
https://vimeo.com/event/6127448/embed/f62e2e0437/interaction
Fjárfestar geta sent spurningar sem óskað er eftir að verði teknar fyrir á fundinum á netfangið fjarfestatengsl@reitir.is.
Kynningarefni fundarins er aðgengilegt á fjárfestasíðu Reita www.reitir.is/fjarfestar.
Um Reiti
Reitir hf. er íslenskt hlutafélag. Samstæða félagsins samanstendur af móðurfélaginu, Reitum hf., ásamt níu dótturfélögum sem öll eru að fullu í eigu móðurfélagsins. Starfsemi Reita felst í eignarhaldi, útleigu og umsýslu atvinnuhúsnæðis sem að stærstum hluta er verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Þar að auki er félagið virkt í fasteignaþróun. Fasteignir í eigu félagsins eru í dag um 150 talsins, um 490 þúsund fermetrar að stærð. Meðal fasteigna Reita má nefna stærstan hluta verslunarmiðstöðvarinnar Kringlunnar, Spöngina og Holtagarða, Hótel Borg, Hotel Hilton Nordica og Hótel Reykjavík Natura auk skrifstofubygginga við Höfðabakka 9 og að Vínlandsleið ásamt húsnæði Landspítala við Skaftahlíð og Eiríksgötu auk höfuðstöðva Sjóvár og Advania.
Eigendur eru að stærstum hluta íslenskir lífeyrissjóðir.
Nánari upplýsingar
Upplýsingar veita Guðni Aðalsteinsson, forstjóri, í netfanginu gudni@reitir.is eða í síma 575 9000 og 624 0000 eða Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri í netfanginu einar@reitir.is eða í síma 575 9000 og 699 4416.
Viðhengi