Reitir hf. hefur lokið stækkun á áður útgefnum skuldabréfaflokki REITIR 28 sem gefinn er út undir útgáfuramma félagsins. Stækkunin, að fjárhæð 3.000 m.kr., var seld á 90bp álagi á 3M REIBOR til dreifðs hóps fjárfesta, verðbréfasjóða, einkafjárfesta og stofnanafjárfesta.
REITIR 28 er 6.000 m.kr. skuldabréfaflokkur sem greiðir fljótandi vexti tengda þriggja mánaða REIBOR-vöxtum, auk 0,90% vaxtaálags, með einni höfuðstólsgreiðslu á lokagjalddaga þann 15. maí 2028. Greiðslur vaxta eru á þriggja mánaða fresti, fyrst þann 15. október 2026.
Greiðslu- og uppgjörsdagur er fyrirhugaður 15. september 2026.
Íslandsbanki hf. hafði umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku skuldabréfanna til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.
Ekki var um almennt útboð að ræða. Útboðið var sömuleiðis undanþegið gerð lýsingar á grundvelli a, c og d - liðar, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði, sbr. lög nr. 14/2020 um sama efni.
Upplýsingar veita Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, einar@reitir.is, sími 669-4416 og verðbréfamiðlun Íslandsbanka, vbm@islandsbanki.is