Reitir munu birta uppgjör vegna fyrri árshelmings 2026 eftir lokun markaða mánudaginn 24. ágúst næstkomandi. Af því tilefni er fjárfestum og markaðsaðilum boðið til fundar, þar sem Guðni Aðalsteinsson, forstjóri og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, kynna uppgjörið. Fundurinn verður haldinn kl. 8:30 þriðjudaginn 25. ágúst nk. á skrifstofu Reita, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík. Fundinum verður jafnframt streymt á slóðinni: https://vimeo.com/event/6127448/embed/f62e2e0437/interaction
Fjárfestar sem fylgjast með streymi geta sent spurningar til stjórnenda á netfangið fjarfestatengsl@reitir.is.
Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í 669 4416 eða einar@reitir.is.