Orkuveita Reykjavíkur (Orkuveitan) efnir til útboðs á skuldabréfum fimmtudaginn 20. ágúst 2026. Boðnir verða til sölu grænu skuldabréfaflokkarnir OR031033 GB, OR180242 GB og OR180255.
Orkuveita Reykjavíkur (Orkuveitan) efnir til útboðs á skuldabréfum fimmtudaginn 20. ágúst 2026. Boðnir verða til sölu grænu skuldabréfaflokkarnir OR031033 GB, OR180242 GB og OR180255.
OR031033 GB ber fasta 8,30% óverðtryggða vexti og greiðir jafnar afborganir á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 3. október 2033. Áður hafa verið gefin út og tekin til viðskipta bréf að nafnverði 12.785 m.kr. í flokknum.
OR180242 GB ber 4,50% fasta óverðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 18. febrúar 2042. Áður hafa verið gefin út og tekin til viðskipta bréf að nafnverði 12.818 m.kr. í flokknum.
OR180255 GB ber 2,60% fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 18. febrúar 2055. Áður hafa verið gefin út og tekin til viðskipta bréf að nafnverði 43.641 m.kr. í flokknum.
Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.
Skila skal inn tilboðum á netfangið utbod@fossar.is fyrir klukkan 17:00 fimmtudaginn 20. ágúst 2026. Uppgjör viðskipta fer fram fimmtudaginn 27. ágúst 2026.
Nánari upplýsingar veita:
Snorri Hafsteinn Þorkelsson, framkvæmdastjóri Fjármála Orkuveitunnar, sími: 516 6100, netfang: snorri.hafsteinn.thorkelsson@or.is
Matei Manolescu, markaðsviðskiptum Fossa fjárfestingarbanka, sími: 522 4008, netfang: matei.manolescu@fossar.is