Útboði á grænum skuldabréfum Orkuveitu Reykjavíkur lauk í dag, 20. ágúst 2026. Gefin voru út skuldabréf í skuldabréfaflokkunum OR031033 GB, OR180242 GB og OR180255 GB. Samtals bárust tilboð að nafnverði 3.375 m.kr.
OR031033 GB ber fasta 8,30% óverðtryggða vexti og greiðir jafnar afborganir á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 3. október 2033. Áður hafa verið gefin út og tekin til viðskipta bréf að nafnverði 12.785 m.kr. í flokknum.
Heildartilboð í flokkinn voru samtals 2.235 m.kr. að nafnvirði, þar sem ávöxtunarkrafa var á bilinu 8,32-8,55%. Tilboðum að fjárhæð 1.295 m.kr. að nafnvirði var tekið á ávöxtunarkröfunni 8,40%.
OR180242 GB ber fasta 4,5% óverðtryggða vexti og greiðir jafnar afborganir á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 18. febrúar 2042. Áður hafa verið gefin út og tekin til viðskipta bréf að nafnverði 12.818 m.kr. í flokknum.
Heildartilboð í flokkinn voru samtals 340 m.kr. að nafnvirði, þar sem ávöxtunarkrafa var á bilinu 7,75-7,82%. Tilboðum að fjárhæð 300 m.kr. að nafnvirði var tekið á ávöxtunarkröfunni 7,78%.
OR180255 GB ber fasta 2,60% verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 18. febrúar 2055. Áður hafa verið gefin út og tekin til viðskipta bréf að nafnverði 43.641 m.kr. í flokknum.
Heildartilboð í flokkinn voru samtals 800 m.kr. að nafnvirði, þar sem ávöxtunarkrafa var á bilinu 3,68-3,72%. Tilboðum að fjárhæð 800 m.kr. að nafnvirði var tekið á ávöxtunarkröfunni 3,72%.
Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.
Nánari upplýsingar:
Snorri Hafsteinn Þorkelsson, framkvæmdastjóri Fjármála Orkuveitunnar, sími: 516 6100, netfang: snorri.hafsteinn.thorkelsson@orkuveitan.is
Matei Manolescu, markaðsviðskiptum Fossa fjárfestingarbanka, sími: 522 4008, netfang: matei.manolescu@fossar.is