ZUG, Sviss og BARSELÓNA, Spáni, ágúst 10, 2026 -- Oculis Holding AG (Nasdaq: OCS / XICE: OCS) (“Oculis” eða “félagið”), alþjóðlegt líftæknifyrirtæki með áherslu á nýsköpun til að mæta brýnni þörf fyrir meðferðir við augnsjúkdómum og augntaugasjúkdómum, og Accure Therapeutics, S.L. (“Accure”), rannsóknar- og þróunarfyrirtæki í einkaeigu á sviði hagnýtra taugavísinda (e. translational neuroscience), tilkynna í dag að Oculis og Accure hafi undirritað kaupsamning þar sem Oculis mun við uppgjör viðskiptanna eignast allan þróunar- og fjárhagslegan rétt Accure á Privosegtor á heimsvísu. Kaupin munu leiða til uppsagnar á núverandi leyfissamningi Oculis við Accure, þar með talið árangurstengdum greiðslum og þóknunum fyrir hverja ábendingu sem nær árangri. Þessi viðskipti gera Oculis kleift að nýta betur möguleg verðmæti Privosegtor til framtíðar samaborið við ákvæði eldri leyfissamnings við Accure, um leið og meiri fjárhagslegur ávinningur af framtíðarárangri lyfsins er tryggður, þegar félagið heldur áfram þróun þess og kannar möguleika á frekari nýtingu.
Samkvæmt skilmálum samningsins mun Oculis, við fyrsta uppgjör samningsins, eignast réttindi Accure á Privosegtor (ACT-01) og í aðskildu uppgjöri, eignast réttindi Accure á ACT-02, sem er þróunarlyf í taugalækningum á frumstigi forklínískra rannsókna. Framangreind uppgjör eru háð sérstökum skilyrðum og er uppgjör ACT-02 viðskiptanna háð uppgjöri ACT-01 viðskiptanna. Heildarkaupverð fyrir bæði viðskiptin samanstendur af staðgreiðslu Oculis með reiðufé að fjárhæð 3,8 milljónir USD (3,1 milljón CHF) til Accure við fyrsta uppgjör, og útgáfu allt að 2.050.000 almennra hluta í Oculis til Accure. Almennu hlutirnir í Oculis samanstanda annars vegar af hlutum sem afhentir eru strax við uppgjörið (e. upfront shares) en losna undan sölubanni á allt að tveggja ára tímabili eftir lúkningu viðskiptanna og hins vegar árangurstengdum hlutum sem háðir eru ávinnslu tengdri þróun og leyfisveitingarferli lyfjanna. Oculis gerir ráð fyrir yfirtöku, fyrir hvort lyf, núverandi leyfissamninga við akademískar stofnanir, sem fela í sér skuldbindingar um að greiða þóknanir sem nema lágum eins tölustafs prósentum og að vernda réttindi akademískra stofnana til að nota eignirnar í akademískum og ófjárhagslegum tilgangi, eins og krafist er samkvæmt spænskum lögum. Samningurinn hefur verið samþykktur af stjórn Oculis, sem og stjórn og hluthöfum Accure. Gert er ráð fyrir að uppgjör fyrir Privosegtor (ACT-01) fari fram eigi síðar en 28. febrúar 2027 og að uppgjör fyrir ACT-02 fari fram eigi síðar en 31. mars 2027.
Riad Sherif, M.D., framkvæmdastjóri Oculis, sagði: “Kaup á réttindum Accure að Privosegtor er mikilvægur stefnumarkandi áfangi fyrir Oculis. Með uppsögn eldri leyfissamnings okkar við Accure getum við tryggt okkur fjárhagsleg réttindi á alþjóðavísu að þessari einstöku, langtímaeign með verulega lægri þóknunum á sama tíma og við vöxum í leiðandi hlutverk á sviði taugaaugnlækninga. Þessi viðskipti eiga sér stað á heppilegum tíma þar sem Privosegtor nálgast ört helstu þróunaráfanga, þar á meðal yfirstandandi PIONEER-1 rannsóknina fyrir sjóntaugarbólgu og væntanlega IND-umsókn vegna bráðra kasta MS-sjúkdóms síðar á þessu ári. Við höfum áfram mikla trú á möguleikum Privosegtor til að mæta verulegum óuppfylltum þörfum vegna taugaaugnsjúkdóma og taugasímasjúkdóma og með því skila hluthöfum langtímaverðmætum.”
Philippe Monteyne, M.D., stjórnarformaður Accure, and Laurent Nguyen, M.D., framkvæmdastjóri Accure, sögðu: “Þessi viðskipti endurspegla styrk nýsköpunar vísindamanna sem við höfum starfað með, starfsmanna og samstarfsaðila í gegnum árin. Í kjölfar farsæls samstarfs við Oculis vegna ACT-01 telur stjórn okkar að yfirfærsla á fullum rétti okkar að Privosegtor (ACT-01) og ACT-02 til Oculis skapi trygg verðmæti fyrir hluthafa okkar og tryggi um leið framtíðarárangur þessa eigna. Forgangsverkefni okkar hefur alltaf verið að tryggja að þessar efnilegu eignir fái besta tækifærið til að gagnast sjúklingum og við teljum að þessi viðskipti stuðli að því markmiði. Við erum ánægð með að hafa náð samkomulagi sem viðurkennir verðmæti þessara eigna og styður við áframhaldandi þróun þeirra og við hlökkum til að sjá hvernig þessi verkefni þróast undir þeirra stjórn.”
Privosegtor, ný lítil sameind sem er peptíðareftirlíking og kemst yfir blóð-heila og sjónhimnuþröskulda, hefur möguleika á að verða fyrsta taugaverndandi meðferðin við sjóntaugabólgu (e. optic neuritis, ON), með víðtæka möguleika fyrir aðra taugaaugnsjúkdóma og taugasímasjúkdóma. Í kjölfar jákvæðra niðurstaða úr fasa 2 ACUITY-rannsókninni hóf Oculis PIONEER-áætlunina sem felur í sér þrjár lykilrannsóknir til að styðja við skráningaráætlanir fyrir Privosegtor við sjóntaugakvillum. Fyrsta skráningarrannsóknin í áætluninni, PIONEER-1, leggur mat á Privosegtor hjá breiðum hópi sjúklinga eftir bráða sjóntaugabólgu sem samanstendur annars vegar af sjúklingum með MS-sjúkdóminn og hins vegar af sjúklingum án MS-sjúkdómsins. Virkjun klínískra rannsóknarsetra fyrir PIONEER-1 gengur samkvæmt áætlun. Oculis tilkynnti einnig nýlega um jákvæð viðbrögð FDA við IND-umsókn sem styðja við þróunarleið Privosegtor við bráðum köstum MS-sjúkdóms, og er fyrirhugað að IND-umsókn verði lögð fram á fjórða ársfjórðungi 2026.
-ENDIR-
Um Privosegtor
Privosegtor er ný lítil sameind sem er peptíðareftirlíking og kemst yfir blóð-heila og sjónhimnuþröskulda og hefur möguleika á að verða fyrsta taugaverndandi meðferðin við sjóntaugabólgu (e. optic neuritis, ON) og öðrum augntauga- og taugasjúkdómum. Jákvæðar niðurstöður úr fasa 2 ACUITY-rannsókninni sýndu fram á taugaverndandi möguleika Privosegtor, sem kom fram í bættri sjónvirkni, studdri af líffærafræðilegu viðhaldi sjónhimnu, þ.m.t. GCIPL- og RNFL-laga, og lækkuðu magni taugaþráða í blóði eftir bráð tilvik sjóntaugabólgu. Samhljóða niðurstöður komu fram í forklínískum rannsóknum (e. animal models) á gláku, sjóntaugabólgu og MS-sjúkdóm, þar sem Privosegtor varðveitti taugahnoðfrumur sjónhimnu og tengdist bættri hreyfigetu (klínískri færniskerðingu) í MS-líkaninu.
Privosegtor hefur hlotið stöðu byltingarkennds meðferðarlyfs frá bandaríska matvæla- og lyfjaeftirlitinu (FDA) og stöðu forgangslyfs (Priority Medicines, PRIME) frá Lyfjastofnun Evrópu (EMA), auk stöðu lyfs gegn sjaldgæfum sjúkdómum (orphan drug) frá bæði FDA og EMA fyrir sjóntaugabólgu. Nú er yfirstandandi rannsókn á Privosegtor í PIONEER-áætlun Oculis (Privosegtor Investigation in Optic Neuropathies Efficacy Evaluation Research), sem felur í sér tvær skráningarrannsóknir á sjóntaugabólgu og eina skráningarrannsókn á blóðþurrð í sjóntaug án slagæðabólgu (e. non-arteritic anterior ischemic optic neuropathy, NAION). Á grundvelli gagnasafns úr fasa 2 ACUITY-rannsókninni við sjóntaugabólgu og uppbyggilegra viðbragða FDA í aðdraganda IND-umsóknar, áætlar Oculis jafnframt að leggja fram IND-umsókn fyrir Privosegtor til meðferðar á bráðum köstum MS-sjúkdóms.
Tekið skal fram að Privosegtor er rannsóknarlyf og hefur ekki hlotið samþykki eftirlitsstofnana til almennrar notkunar í neinu landi.
Um Oculis
Oculis er alþjóðlegt líftæknifyrirtæki (Nasdaq: OCS; XICE: OCS) með áherslu á nýsköpun við meðferð á augn- og augntaugasjúkdómum í því skyni að mæta verulegum óuppfylltum læknisfræðilegum þörfum. Í klínískri þróun hjá Oculis eru tvö lykilþróunarlyf. Privosegtor er taugaverndandi tímamótaþróunarlyf í PIONEER-áætluninni, sem samanstendur af rannsóknum sem er ætlað að styðja við skráningaráætlanir vegna meðferða við sjóntaugakvillum á borð við sjóntaugabólgu (ON) og blóðþurrð í sjóntaug án slagæðabólgu (NAION), en lyfið kann einnig að hafa víðtæka notkunarmöguleika við ýmsum öðrum augntauga- og taugasjúkdómum. Licaminlimab eru augndropar í skráningarrannsóknum sem innihalda TNF-hamlara og byggjast á notkun erfðamerkis til að þróa einstaklingsmiðaða lyfjameðferð við augnþurrki (DED). Höfuðstöðvar Oculis eru í Sviss og félagið er með starfsstöðvar í Bandaríkjunum og á Íslandi. Stjórnendur Oculis hafa mikla reynslu á sviði lyfjaiðnaðar og hafa náð miklum árangri hver á sínu sviði. Þá standa leiðandi alþjóðlegir fjárfestingarsjóðir á sviði heilbrigðisvísinda að baki félaginu.
Frekari upplýsingar er að finna á: www.oculis.com
Tengiliðir hjá Oculis
Ms. Sylvia Cheung, fjármálastjóri
sylvia.cheung@oculis.com
Fjárfestatengsl
LifeSci Advisors
Corey Davis, Ph.D.
cdavis@lifesciadvisors.com
Fjölmiðlatengsl
ICR Healthcare
Amber Fennell / David Daley / Sean Leous
oculis@icrhealthcare.com
Um Accure Therapeutics
Accure Therapeutics er einkarekið rannsóknar- og þróunarfyrirtæki á sviði taugavísinda. Fyrirtækið er með aðsetur í Barselóna á Spáni og var stofnað árið 2020 með sprotafjármögnun undir forystu Alta Life Sciences Spain I (í stýringu ALTAMAR PRIVATE EQUITY SGIIC, S.A.U. og með ráðgjöf frá Asabys partners) ásamt Miðstöð fyrir tækni- og iðnþróun (CDTI). Fyrirtækið hefur einstakt safn þriggja nýrra efnafræðilegra eininga sem eru þær fyrstu sinnar tegundar og beinast að nýstárlegum markmiðum sem gætu gjörbreytt meðferð alvarlegra sjúkdóma í miðtaugakerfinu: ACT-01 (upphaflega frá IDIBAPS-Hospital Clinic, Barselóna, Spáni, og spænska rannsóknarráðinu CSIC og síðan með leyfi til Oculis – NASDAQ: OCS) sem hefur lokið II. stigs klínískri rannsókn með jákvæðum niðurstöðum í bráðri sjóntaugabólgu, ACT-02 (upphaflega frá Rannsóknarstofnun í líflæknisfræði IRB, Barselóna, Spáni, og Háskólanum í Barselóna UB) á IND-undirbúningsstigi fyrir parkinsonsveiki og ACT-03 á CCS-stigi fyrir flogaveiki. Með reyndu teymi í viðskiptum og vísindum er Accure Therapeutics eitt fárra fyrirtækja sem starfar á hlutlausan hátt gagnvart upphaflegum vísindum til að skila framúrskarandi lyfjum á sviði miðtaugakerfisins.
Tengiliðir hjá Accure
Ms. Silvia Lopez, fjármálastjóri
slopez@accure.health
Fyrirvarar
Þessi fréttatilkynning er þýðing á enskri útgáfu tilkynningarinnar. Ef misræmi kemur fram gildir orðalag ensku útgáfunnar. Fréttatilkynningin inniheldur staðhæfingar um atburði í framtíðinni (e. forward-looking statements) eins og hugtakið er skilgreint í bandarísku löggjöfinni Private Securities Litigation Reform Act of 1995, sbr. það sem fram kemur í eftirfarandi fyrirvörum á ensku.
Cautionary Statement Regarding Forward Looking Statements
This press release contains forward-looking statements and information. For example, statements regarding the development and potential benefits of the Company’s product candidates, including the initiation, timing, progress and results of current and future clinical trials, Oculis’ research and development programs, regulatory and business strategy; expected milestones and ability to deliver value-driving milestones; statements about market opportunity; statements about the potential benefits of the transactions described herein, including the potential to drive long-term value creation and other economic benefits of the transactions; the likelihood, timing and outcome of completion of the transactions, including Oculis’ expectation to assume existing license agreements with academic institutions for the acquired assets and the satisfaction or waiver of all relevant conditions precedent, are forward-looking. All forward-looking statements are based on estimates and assumptions that, while considered reasonable by Oculis and its management, are inherently uncertain and are inherently subject to risks, variability, and contingencies, many of which are beyond Oculis’ control. The transactions discussed herein are each subject to conditions precedent which may not be completed or waived in a timely manner or at all, which could result in failure to close one or more of the transactions. These forward-looking statements are provided for illustrative purposes only and are not intended to serve as, and must not be relied on by an investor as, a guarantee, assurance, prediction or definitive statement of a fact or probability. Actual events and circumstances are difficult or impossible to predict and will differ from assumptions. All forward-looking statements are subject to risks, uncertainties and other factors that may cause actual results to differ materially from those that we expected and/or those expressed or implied by such forward-looking statements. Forward-looking statements are subject to numerous conditions, many of which are beyond the control of Oculis, including those set forth in the Risk Factors section of Oculis’ annual report on Form 20-F and any other documents filed with the SEC. Copies of these documents are available on the SEC’s website, www.sec.gov. Oculis undertakes no obligation to update these statements for revisions or changes after the date of this release, except as required by law.