Traustur grunnur og nýr vaxtarkafli hjá Nova Klúbbnum
Nova Klúbburinn skilaði traustum rekstri á öðrum ársfjórðungi 2026 samhliða verulegum breytingum á samstæðunni. Heildartekjur námu 4.192 m.kr. og jukust um 22% milli ára, einkum vegna þess að rekstur Ofar kemur inn í samstæðureikninginn frá 1. júní. Þjónustutekjur Nova námu 2.804 m.kr. og jukust um 3,2%. EBITDA fjórðungsins nam 702 m.kr. og EBITDA-hlutfall var 16,7%. Hagnaður eftir skatta nam 34 m.kr. og handbært fé frá rekstri var 1.029 m.kr.
Á fjórðungnum tók Nova Klúbburinn mikilvæg skref í þróun samstæðunnar. Ofar varð hluti af samstæðunni, Kosmos hóf fjarskiptaþjónustu í maí og samstarfið við Rafal komst á skrið. Samhliða var ráðist í aðgerðir til að einfalda rekstur Nova, bæta arðsemi og styrkja grunninn að áframhaldandi vexti, en áhrifa þeirra er að vænta síðar á árinu.
Samanburður við fyrra ár mótast af nokkrum breytingum á samstæðunni. Rekstrarfyrirkomulag Nova breyttist við sölu 4G- og 5G-dreifikerfisins til Sendafélagsins um síðustu áramót og Ofar er aðeins hluti af uppgjörinu í einn mánuð. Þá kemur kostnaður vegna uppbyggingar Kosmos fram á fjórðungnum, en tekjur eru enn takmarkaðar þar sem þjónusta hófst í maí og fyrsti þjónustumánuður viðskiptavina er án endurgjalds.
Helstu niðurstöður á öðrum ársfjórðungi:
Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri Nova Klúbbsins, segir uppgjörið sýna sterkan rekstur Nova á sama tíma og samstæðan tekur á sig skýrari mynd og fjárfest er í nýjum vaxtartækifærum.
„Nova Klúbburinn er á spennandi tímamótum. Við erum að þróast frá einu öflugu fjarskiptafélagi yfir í klúbb sérhæfðra félaga sem sækja vöxt þar sem tækni, innviðir og góð þjónusta mætast. Uppbyggingin krefst fjárfestingar áður en ávinningurinn skilar sér að fullu, en markmiðið er skýrt: að breikka tekjugrunninn, styrkja afkomuna og skapa fleiri leiðir til vaxtar.
Ofar er fyrsta stóra skrefið í þeirri vegferð. Félagið kemur inn í samstæðureikning Nova Klúbbsins frá 1. júní og því sjáum við aðeins áhrif eins mánaðar í uppgjörinu. Rekstur Ofar var sterkur á fyrri árshelmingi og kemur félagið inn í samstæðuna og styrkir enn frekar sjóðstreymi samstæðunnar. Á fyrri árshelmingi jukust tekjur um 26% og EBITDA um 46% milli ára. Nýir tekjustraumar eru jafnframt að byggjast upp og þjónustutekjur að aukast. Samlegðartækifæri eru þegar komin í vinnslu, meðal annars með betri nýtingu sameiginlegs vöruhúss. Við ætlum að byggja áfram á þessum grunni með starfsfólki Ofar og sækja þau tækifæri sem skapa raunverulegt virði fyrir félagið og viðskiptavini þess.
Kosmos er skýrasta dæmið um hvernig Nova Klúbburinn ætlar að ögra markaðnum og sjálfum sér. Félagið kom inn á markaðinn í maí með lægsta verð í 5G og farsímaþjónustu og var byggt frá grunni með gervigreind, fámennt teymi og einfalt, alstafrænt rekstrarlíkan að leiðarljósi. Viðskiptavinum fjölgar í takt við áætlanir og Kosmos gerir okkur kleift að ná til nýs markhóps og nýta innviði Nova betur. Samstarfið við Rafal er jafnframt komið vel af stað og þar felast tækifæri til að byggja nýjar lausnir á innviðum samstæðunnar.
Allt þetta byggir á Nova, sterkum sjóðstreymiskjarna samstæðunnar. Heildartekjur Nova jukust um 5% á öðrum ársfjórðungi og handbært fé frá rekstri nam 1.029 m.kr. Kostnaður hefur hins vegar aukist hraðar en tekjur og sú þróun er ekki ásættanleg til lengri tíma. Við höfum þegar ráðist í aðgerðir, bæði í sókn og hagræðingu. Markmiðið er ekki einfaldlega að skera niður heldur að byggja hraðara, einfaldara og arðbærara Nova. Viðskiptavinir munu sjá breytingarnar skýrar á næstu misserum. Við höfum þegar kynnt nýja nálgun á fyrirtækjamarkaði sem gerir fjarskipti og tækni einfaldari fyrir fyrirtæki. Næst færum við öflugri endabúnað, eero, inn á Nova-heimili og bjóðum hverju heimili lausn sem tekur mið af eigin þörfum. Þetta er Nova í næsta gír: færri flækjur, persónulegri þjónusta og tækni sem hjálpar fólki og fyrirtækjum að fá meira út úr lífinu.“
Kynningarfundur 26. ágúst:
Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn á morgun, miðvikudaginn 26. ágúst, kl. 8:30, hjá Nova, Lágmúla 9 á 4. hæð.
Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri, ásamt Þórhalli Jóhannssyni, fjármálastjóra, kynna uppgjör Nova Klúbbsins og svara fyrirspurnum.
Boðið verður uppá beint streymi sem hægt verður að nálgast ásamt kynningarefni á heimasíðu Nova.
Velkomið er að senda spurningar fyrir kynningarfundinn eða á meðan á honum stendur á netfangið fjarfestatengsl@nova.is.
Viðhengi