Nova Klúbburinn hf. birtir árshlutauppgjör annars ársfjórðungs 2026 eftir lokun markaða á morgun, þriðjudaginn 25. ágúst.
Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 26. ágúst, kl. 8:30, hjá Nova, Lágmúla 9, á 4. hæð.
Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri, ásamt Þórhalli Jóhannssyni, fjármálastjóra, kynna uppgjör Nova Klúbbsins og svara fyrirspurnum.
Boðið verður uppá beint streymi sem hægt verður að nálgast ásamt kynningarefni á heimasíðu Nova.
Velkomið er að senda spurningar fyrir kynningarfundinn eða á meðan á honum stendur á netfangið fjarfestatengsl@nova.is.
Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálstjóri Nova, á fjarfestatengsl@nova.is.