Í 29. viku 2026 keypti Nova Klúbburinn hf. („Félagið“) 3.600.000 eigin hluti fyrir ISK 13.905.100 eins og hér segir:
| Dagsetning | Tími viðskipta | Keyptir hlutir | Gengi á hlut | Kaupverð | Eigin hlutir eftir viðskipti | |
| 13.7.2026 | 10:09 | 890.000 | 3,870 | 3.444.300 | 10.190.000 | |
| 14.7.2026 | 10:30 | 910.000 | 3,880 | 3.530.800 | 11.100.000 | |
| 15.7.2026 | 13:40 | 900.000 | 3,860 | 3.474.000 | 12.000.000 | |
| 16.7.2026 | 11:16 | 900.000 | 3,840 | 3.456.000 | 12.900.000 | |
| Samtals | 3.600.000 | 13.905.100 |
Er hér um að ræða kaup Félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun Félagsins sem var hrint í framkvæmd 29. júní 2026, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags 29. júní 2026.
Félagið hefur nú keypt samtals 12.900.000 hluti í Félaginu sem samsvarar 3,74% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals ISK 49.767.600 sem samsvarar 9,05% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Félagið á nú samtals 12.900.000 eigin hluti, eða 0,37% af heildarhlutafé Félagsins sem er 3.447.374.756.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða í kauphöll Nasdaq OMX Iceland hf. að hámarki keyptir 344.737.475 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en ISK 550.000.000. Áætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 2027, nema ef skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma, eða ákvörðun tekin um annað.
Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, og 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum, og reglugerð framkvæmdastjórnar 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupáætlanir.
