Nasdaq verðbréfamiðstöð birtir ársfjórðungslega upplýsingar um heildarveðsetningu á þeim hlutabréfum sem skráð eru á mörkuðum Nasdaq Iceland og eru jafnframt rafrænt skráðir hjá Nasdaq verðbréfamiðstöð. Nánar tiltekið er um að ræða upplýsingar um meðalveðsetningu allra félaga á hlutabréfamörkuðum Nasdaq Iceland, Aðalmarkaði og Nasdaq First North, reiknað út frá vægi hvers og eins félags.
Upplýsingar um veðsetningu geta veitt ákveðnar vísbendingar um umfang skuldsetningar á hlutabréfamarkaði, það er hversu mikið fjárfestar hafa fengið að láni til að kaupa í skráðum félögum.
Sjá hjálagt Excel skjal.
Nánari upplýsingar veitir Nasdaq verðbréfamiðstöð, csd.iceland@nasdaq.com