Reykjavík, 17. september 2026 – Nasdaq Iceland tilkynnir um innleiðingu miðlægs mótaðila (e. Central Counterparty - CCP) á íslenskum hlutabréfamarkaði á fyrsta ársfjórðungi 2028. Breytingin felur í sér eina umfangsmestu framþróun á íslenskum verðbréfamarkaði á síðari árum.
Miðlægur mótaðili er lykilþáttur í innviðum nútímalegra verðbréfamarkaða og er fyrirkomulagið útbreitt á flestum þróuðum mörkuðum í Evrópu. Viðskipti í gegnum miðlægan mótaðila færir íslenska markaðinn nær alþjóðlegum stöðlum og kröfum fjárfesta, styrkir viðnámsþrótt hans, skilvirkni og aðgengi og styðurvið vöxt og samkeppnishæfni markaðarins til lengri tíma.
Með því að færa mótaðilaáhættu til miðlægs mótaðila og gera marghliða nettun mögulega er gert ráð fyrir að miðlægur mótaðili skili íslenska markaðnum margvíslegum ávinningi, meðal annars:
„Hjá Nasdaq leggjum við áherslu á að byggja upp trausta og samtengda verðbréfamarkaði sem styðja við hagvöxt og þjóna útgefendum og fjárfestum,“ segir Nikolaj Kosakewitsch yfirmaður markaðsþjónustu Nasdaq í Evrópu. „Innleiðing miðlægs mótaðila á Íslandi er mikilvægt skref sem færir íslenska verðbréfamarkaðinn nær því skipulagi og fyrirkomulagi uppgjörs sem tíðkast á flestum þróuðum hlutabréfamörkuðum í Evrópu.“
„Innleiðing miðlægs mótaðila markar mikilvæg tímamót í áframhaldandi þróun íslensks verðbréfamarkaðar,“ segir Magnús Harðarson, forstjóri Nasdaq Iceland. „Fyrirkomulagið mun efla samkeppnishæfni markaðarins, bæta aðgengi alþjóðlegra fjárfesta og stuðla að auknum seljanleika og þátttöku. Við hlökkum til að vinna með markaðsaðilum, yfirvöldum og miðlæga mótaðilanum að undirbúningi fyrir innleiðinguna á fyrsta ársfjórðungi 2028.“
Cboe Clear Europe, leiðandi miðlægur mótaðili í Evrópu, verður samstarfsaðili Nasdaq við innleiðingu miðlægs mótaðila á íslenskum hlutabréfamarkaði. Cboe Clear Europe hefur víðtæka reynslu af þjónustu við markaði Nasdaq á Norðurlöndum. Sem einn mest tengdi uppgjörsaðili í Evrópu, mun Cboe Clear Europe gegna lykilhlutverki við að styðja við örugga og skilvirka innleiðingu miðlægs mótaðila á Íslandi.
Til að byrja með verða viðskipti með valin hlutabréf tekin til uppgjörs í gegnum miðlægan mótaðila. Gert er ráð fyrir að umfangið aukist með tímanum eftir því sem umgjörðin þróast.