Moody's hefur staðfest lánshæfiseinkunn ríkissjóðs í A1. Horfur eru áfram stöðugar.
Staðfestingin endurspeglar þá skoðun Moody´s að íslenskt efnahagslíf muni halda áfram að auka fjölbreytni útflutnings með vexti nýrra og arðbærra atvinnugeira, þótt hagkerfið verði áfram berskjaldað fyrir áföllum í undirstöðuatvinnugreinunum þremur. Jafnframt mun virk og vel samhæfð stefnumótun styðja við efnahagslegan stöðugleika og stuðla að hjöðnun verðbólgu. Staðfesting lánshæfiseinkunnarinnar endurspeglar einnig staðfestu stjórnvalda við að bæta afkomu hins opinbera, sem Moody’s telur að muni styðja við áframhaldandi uppbyggingu fjárhagslegs svigrúms, þó hægar en undanfarin ár.
Stöðugar horfur endurspegla í stórum dráttum jafnvægi ólíkra áhættuþátta. Meira framlag nýrra atvinnugreina til hagvaxtar en nú er gert ráð fyrir, gæti stutt við varanlega meiri hagvöxt og hraðari bata í opinberum fjármálum. Ísland hefur náð verulegum árangri í uppbyggingu þekkingarmikillar starfsemi á sviði tækni og heilbrigðisþjónustu, auk þess að auka verðmætasköpun innan hefðbundinna atvinnugreina, meðal annars í fiskeldi. Samstillt og samhæfð stefna stjórnvalda frá fjármálakreppunni 2008 hefur stutt við uppbyggingu stuðpúða sem eykur viðnámsþrótt gagnvart áföllum. Bætt regluverk um fjármálamarkaði og þjóðhagsvarúðarstefna hafa aukið viðnámsþrótt bankakerfisins. Sterk efnahagsstaða heimilanna, lágar skuldir og miklar lífeyriseignir efla getu þeirra til að takast á við áföll. Staðföst stefna stjórnvalda til aðhalds í ríkisfjármálum mun styðja áframhaldandi bata í opinberum fjármálum og leiða til aukins viðnámsþróttar gegn áföllum.
Lánshæfiseinkunn Íslands gæti hækkað með jákvæðri efnahagsþróun sem eykur vaxtargetu hagkerfisins og styður við sjálfbærari og stöðugri hagvöxt til lengri tíma. Þar gæti meðal annars skipt máli aukin fjölbreytni í atvinnulífi og útflutningi. Einkunnin gæti einnig hækkað ef fjármál hins opinbera halda áfram að styrkjast, sem leiðir til aukins fjármálalegs svigrúms, ásamt varanlegri bætingu á skuldabyrði ríkissjóðs. Slík þróun myndi draga úr viðkvæmni ríkisfjármála fyrir efnahagslegum áföllum.
Lánshæfiseinkunn Íslands gæti lækkað ef stórt áfall myndi valda varanlegum skaða í lykilútflutningsgreinum sem veikti verulega efnahagslegan viðnámsþrótt. Frávik frá áætlunum um opinber fjármál sem drægju úr líkum á jafnvægi í rekstri eða leiddu til hækkunar skuldahlutfalla gætu leitt til lækkunar lánshæfiseinkunnar. Sama á við um umfangsmikið fjármagnsútstreymi sem raskaði ytri stöðugleika eða fjármálastöðugleika. Einnig gæti viðvarandi vöxtur launa umfram framleiðni rýrt samkeppnishæfni Íslands og leitt til lægra lánshæfismats.
Sjá nánar á vef stjórnarráðsins.