Á fundi sínum í dag samþykkti stjórn Ljósleiðarans ehf. árshlutareikning fyrirtækisins fyrir fyrri hluta ársins 2026. Samkvæmt honum voru tekjur félagsins á tímabilinu 3.111,5 milljónir króna. Þær voru 2.958,1 m.kr. á sama tímabili 2025. Rekstrargjöld voru 1.359,9 m.kr. en voru 1.251,7 mkr. árið áður. Rekstrarhagnaður (EBIT) nam 673,9 m.kr. samanborið við 633,4 m.kr. á fyrra ári og hækkaði því um 6,4% milli ára. Vaxtagjöld og verðbætur í rekstrarreikningi námu 1.289,7 m.kr. á fyrri hluta ársins en voru 1.078,0 m.kr. fyrri hluta ársins 2025, sem er aukning um 19,6%.
Tap af rekstri Ljósleiðarans ehf. á tímabilinu 1. janúar til 30. júní 2026 nam 480,6 milljónum króna. Samkvæmt efnahagsreikningi námu eignir félagsins í lok tímabilsins 40,1 milljarði króna og eiginfjárhlutfall 30. júní 2026 var 34,2%.
Tengiliður:
Þuríður Björg Guðnadóttir
framkvæmdastýra Ljósleiðarans
thuridur.bjorg.gudnadottir@ljosleidarinn.is