Arion banki hf. leiðréttir hér með tilkynningu um viðskipti samkvæmt endurkaupaáætlun bankans í 32. viku 2026 sem birt var 10. ágúst 2026. Í tilkynningunni voru tvenn viðskipti sem framkvæmd voru 7. ágúst 2026 á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland birt með röngum tíma og kaupverði. Leiðréttingin felur í sér að samanlagt kaupverð umræddra viðskipta var 550.000 kr. lægra en áður var greint frá. Sjá leiðrétta tilkynningu fyrir neðan.
Vísað er til tilkynningar Arion banka sem birt var 22. maí 2026 um framkvæmd endurkaupaáætlunar. Í 32. viku 2026 keypti Arion banki eigin hluti á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. og sænsk heimildarskírteini (SDR) á Nasdaq í Stokkhólmi. Sjá frekari upplýsingar hér að neðan.
Endurkaup á hlutum á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í umrædd skipti voru eftirfarandi:
| Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Hlutir í eigu Arion |
| 5.8.2026 | 09:48:11 | 100.000 | 193,50 | 19.350.000 | 32.110.467 |
| 5.8.2026 | 11:01:21 | 200.000 | 194,00 | 38.800.000 | 32.310.467 |
| 5.8.2026 | 11:24:28 | 150.000 | 194,00 | 29.100.000 | 32.460.467 |
| 5.8.2026 | 13:00:23 | 100.000 | 193,25 | 19.325.000 | 32.560.467 |
| 6.8.2026 | 11:57:39 | 200.000 | 192,50 | 38.500.000 | 32.760.467 |
| 6.8.2026 | 14:08:09 | 200.000 | 192,50 | 38.500.000 | 32.960.467 |
| 6.8.2026 | 14:14:01 | 150.000 | 192,50 | 28.875.000 | 33.110.467 |
| 7.8.2026 | 10:34:10 | 200.000 | 191,75 | 38.350.000 | 33.310.467 |
| 7.8.2026 | 13:02:18 | 100.000 | 191,50 | 19.150.000 | 33.410.467 |
| 7.8.2026 | 13:35:37 | 200.000 | 191,50 | 38.300.000 | 33.610.467 |
| 1.600.000 | 308.250.000 | 33.610.467 |
Endurkaup á heimildarskírteinum á Nasdaq í Stokkhólmi voru eftirfarandi:
| Dagsetning | Tími | Keypt SDR | Viðskiptaverð | Kaupverð (SEK) | SDR í eigu Arion |
| 4.8.2026 | 10:06:38 | 299 | 14,68 | 4.389 | 3.764.677 |
| 4.8.2026 | 10:13:29 | 11 | 14,68 | 161 | 3.764.688 |
| 4.8.2026 | 10:12:01 | 11 | 14,68 | 161 | 3.764.699 |
| 6.8.2026 | 09:13:10 | 11 | 14,86 | 163 | 3.764.710 |
| 6.8.2026 | 09:24:19 | 12 | 14,86 | 178 | 3.764.722 |
| 6.8.2026 | 10:13:57 | 1.977 | 14,86 | 29.378 | 3.766.699 |
| 2.321 | 34.432 | 3.766.699 |
Arion banki átti fyrir viðskiptin í viku 32 samtals 35.774.845 eigin hluti og heimildarskírteini og á bankinn í lok viku 32 samtals 37.377.166 eigin hluti og heimildarskírteini. Samtals á bankinn nú sem nemur 2,71% af útgefnum hlutum í félaginu. Frá því að endurkaupaáætlun hófst hefur bankinn keypt samtals 23.100.218 hluti fyrir 4.444.084.325 kr. og 81.419 heimildarskírteini fyrir 1.187.360 sænskar krónur.
Heimilt er að kaupa allt að 532.000 SDR í Svíþjóð, sem samsvarar 0,04% af útgefnum hlutum og allt að 26.068.000 hluti á Íslandi, eða sem svara til 1,89% af útgefnum hlutum bankans (samtals um 1,93% af útgefnum hlutum). Fjárhæð endurkaupanna skal ekki nema hærri fjárhæð en sem svarar til 100.000.000 kr. í Svíþjóð og 4.900.000.000 kr. á Íslandi (samtals 5,0 milljarðar króna). Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar framangreindu er náð eða í síðasta lagi 31. desember 2026. Arion banki hf. hefur heimild til að stöðva framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar hvenær sem er á tímabilinu.
Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög og reglur á Íslandi og í Svíþjóð, eins og við á, þar með talin Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik („MAR“) og ákvæði framseldar reglugerðar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2016/1052, sem og íslensk lög um hlutafélög nr. 2/1995, lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum auk reglna nr. 1290/2025 um sama efni.
Vinsamlegast beinið fyrirspurnum til:
Theodórs Friðbertssonar, fjárfestatengslum Arion banka, ir@arionbanki.is, s. 856 6760, eða Eiríks Dórs Jónssonar, forstöðumanns fjárstýringar, eirikur.jonsson@arionbanki.is, s. 856 7171