Landsbankinn mun halda lokað útboð á sértryggðum skuldabréfum mánudaginn 17. ágúst kl. 15:00. Boðinn verður til sölu óverðtryggði flokkurinn, LBANK CB 32.
Í tengslum við útboðið fer fram skiptiútboð þar sem eigendur verðtryggða flokksins LBANK CBI 26 eiga þess kost að selja bréf í flokknum gegn kaupum á skuldabréfum í ofangreindu útboði. Verð skuldabréfanna er fyrirframákveðið og er 99,644.
Áætlaður uppgjörsdagur er 24. ágúst 2026.
Sértryggðu skuldabréfin verða gefin út undir útgáfuramma Landsbankans fyrir sértryggð skuldabréf. Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A+ með jákvæðum horfum samkvæmt mati S&P.
Markaðsviðskipti Landsbankans hafa umsjón með útboðinu. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar í síma 410-7330 eða með tölvupósti, verdbrefamidlun@landsbankinn.is.
