Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, segir:
„Uppgjör bankans á fyrri hluta þessa árs er sterkt en undir áhrifum hárrar verðbólgu sem hefur neikvæð áhrif á allt efnahagsumhverfi hér á landi. Rekstur bankans er traustur, framfarir stöðugar á öllum sviðum og ánægja viðskiptavina okkar mikil. Við förum betri saman inn í seinni hálfleik þessa árs.
Það skiptir engu að síður sköpum að ná tökum á verðbólgunni svo lækka megi vaxtastigið í landinu. Vonandi skapast aðstæður til þess sem fyrst en þangað til eru sveigjanlegar lausnir til reiðu fyrir okkar viðskiptavini, m.a. nýtt greiðsluþak á íbúðalán. Landsbankinn er stór lánveitandi á byggingarmarkaði og þar eru blikur á lofti sem endurspeglast t.d. í aukinni virðisrýrnun í uppgjöri bankans. Það er erfitt að sjá að ástandið geti lagast fyrr en vextir lækka og til lengri tíma þarf líka að huga að því að minnka flóknar kvaðir og álögur til að sporna við kostnaði nýrra eigna. Þrátt fyrir þetta er hvetjandi að sjá að ungt fólk er að fjárfesta í húsnæði og fyrsta hálfa árið eru um 55% nýrra fasteignalána vegna fyrstu kaupa og meðallánið er um 44 milljónir króna. Við höfum nýtt vel heimildir Seðlabankans til að veita undanþágu frá reglum um greiðslubyrðarhlutfall, eða í yfir 5% tilvika.
Á síðustu mánuðum hefur bankinn sótt fram af miklum móð. Það hefur verið afar ánægjulegt að bjóða ný fyrirtæki velkomin í viðskipti hjá bankanum og við sjáum sömuleiðis að fólk um allt land er að velja Landsbankann, líka þegar kemur að tryggingum sem nú eru hluti af þjónustu bankans. Viðskiptavinum sem velja tryggingar TM í gegnum Landsbankann hefur fjölgað verulega og á fyrstu sex mánuðum ársins hefur afkoman af tryggingum í samstæðunni verið góð.
Þá kynntum við Vild, vildarkerfi Landsbankans, í byrjun sumars. Vild byggir m.a. á umfangi og lengd viðskiptasambands. Vild er sannarlega beggja hagur og við þökkum viðskiptavinum okkar fyrir frábærar móttökur.
Landsbankinn er líka á fullri ferð þegar kemur að nýtingu gervigreindar. Við höfum verið spör á yfirlýsingar í þeim efnum því breytingarnar eru hraðar en verkefni innan bankans tengd gervigreind eru mörg og þegar farin að skila góðum árangri. Við innleiðingu nýrrar tækni er það alltaf leiðarljós okkar að mæta þörfum viðskiptavina með mannlegri þjónustu sem styðst við tæknina og gæta að öryggi. Þróunin hefur verið hröð í stafrænni fjármálaþjónustu að undanförnu og verður enn hraðari í gervigreind. Þá skiptir máli að hjá okkur starfar öflugt fólk hringinn í kringum landið sem hlustar á viðskiptavini og aðstoðar við alla fjármálaþjónustu. Þetta er sérstaða Landsbankans.
Vel rekinn banki styður samfélag sem skapar verðmæti. Á fyrsta helmingi ársins var áfram gott aðgengi að erlendum lánsfjármagnsmörkuðum og markvisst hefur verið unnið að því að lengja og auka fjölbreytni í fjármögnun bankans. Uppgjörið sýnir að við erum áfram að ná árangri í rekstri samstæðunnar og laða til okkar viðskiptavini sem við leggjum okkur fram við að veita góða þjónustu á sanngjörnum kjörum. Í ár fögnum við 140 ára sögu Landsbankans með því að gera okkur glaðan dag í útibúum okkar í ágúst og hátíðarhöldum í Reykjastrætinu á Menningarnótt.
Landsbankinn er og verður traustur banki fyrir farsæla framtíð.“
Fjárhagsdagatal Landsbankans
Nánari upplýsingar veita:
Samskipti, samskipti@landsbankinn.is
Fjárfestatengsl, fjarfestatengsl@landsbankinn.is
Viðhengi
