Landsbankinn hf. hefur undirritað samninga við Arion banka hf., Íslandsbanka hf. og Kviku banka hf. um viðskiptavakt á eftirmarkaði með sértryggð skuldabréf útgefin af Landsbankanum. Skuldabréfin eru skráð á Nasdaq Iceland og taka skyldur viðskiptavaka samkvæmt samningi gildi þann 6. október 2026.
Viðskiptavakar munu fyrir opnun markaða dag hvern setja fram kaup- og sölutilboð í sértryggð skuldabréf útgefin af Landsbankanum. Lágmarksfjárhæð tilboða eru sem hér segir:
| Stærð flokks (ma.kr.) | Nafnverð tilboða (m.kr.) |
| 0 - 3 | 0 |
| 3 - 5 | 20 |
| 5 - 10 | 60 |
| 10 + | 80 |
Lágmarksfjárhæð tilboða í verðtryggðu flokkana LBANK CBI 26 og LBANK CBI 28 miðast við 40 m.kr. að nafnverði.
Skyldur einstakra viðskiptavaka falla niður á tilteknum viðskiptadegi ef viðskiptavaki hefur átt viðskipti (tilgreind „Standard“) með sértryggð skuldabréf fyrir 500 m. kr. að nafnverði samanlagt í þeim flokkum sem samningurinn nær til.
Hámarksmunur kaup- og sölutilboða ákvarðast af verði gildra tilboða og tekur mið af árafjölda til lokagjalddaga sértryggðu skuldabréfanna, á hverjum tíma, í samræmi við eftirfarandi töflu:
| Tími til lokagjalddaga | Hámarksverðmunur |
| 0 - 6 mán | Enginn |
| 6 mán - 2 ár | 0.20% |
| 2 - 4 ár | 0.30% |
| 4 - 6 ár | 0.35% |
| 6 - 9 ár | 0.60% |
| 9 - 12 ár | 0.70% |
| 12 - 18 ár | 1.00% |
| 18 ár eða lengri | 1.15% |
Verðtryggðir flokkar með skemmri líftíma en tvö ár eru undanþegnir ofangreindum kvöðum um hámarksmun kaup- og sölutilboða.
Frá gildistöku samninga um viðskiptavakt geta viðskiptavakar fengið tímabundin bréfalán í flokki þeirra skuldabréfa sem samningurinn tekur til. Hámarkslán til einstakra viðskiptavaka er 320 m. kr. að nafnverði í hverjum flokki.
