Lánasjóður sveitarfélaga hefur ákveðið að efna til útboðs á skuldabréfaflokkunum LSS 39 0303 og LSS151155 miðvikudaginn 16. september 2026. Lánasjóðurinn stefnir að því að taka tilboðum að fjárhæð 500 til 1.500 milljónir króna að nafnvirði í skuldabréfaflokknum LSS151155 og að fjárhæð 500 til 1.500 milljónir króna að nafnvirði í skuldabréfaflokknum LSS 39 0303.
Lánasjóðurinn áskilur sér rétt til að hækka og lækka útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Lánasjóðurinn hefur boðið aðalmiðlurum sjóðsins Arion banka, Íslandsbanka, Kviku banka, Landsbankanum og Fossum fjárfestingabanka að taka þátt í útboðinu.
Óskað er eftir tilboðum í samræmi við eftirfarandi lýsingu:
Að öðru leyti er vísað til skilmála skuldabréfanna á heimasíðu Lánasjóðs sveitarfélaga.
Tilboð skulu berast fyrir kl. 16:00, miðvikudaginn 16. september 2026, til Lánasjóðs sveitarfélaga á netfangið utbod@lanasjodur.is.
Öllum tilboðum verður svarað fyrir kl. 17:00 á útboðsdegi. Uppgjör sölu fer fram mánudaginn 21. september 2026.
Nánari upplýsingar veitir Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, ottar@lanasjodur.is / s. 515 4949