Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokkunum LSS 39 0303 og LSS151155 þann 13. ágúst 2026. Uppgjör viðskipta fer fram 18. ágúst 2026.
Alls bárust tilboð í LSS 39 0303 að nafnvirði ISK 2.005.000.000 á bilinu 3,815% - 4,00%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 995.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,85%. Útistandandi fyrir voru ISK 48.474.100.000 að meðtöldum eigin bréfum Lánasjóðsins vegna viðskiptavaktar (ISK 150.000.000). Heildarstærð flokksins er nú ISK 49.469.100.000.
Alls bárust tilboð í LSS151155 að nafnvirði ISK 470.000.000 á bilinu 3,62% - 3,68%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 330.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,64%. Útistandandi fyrir voru ISK 40.375.000.000 að meðtöldum eigin bréfum Lánasjóðsins vegna viðskiptavaktar (ISK 240.000.000). Heildarstærð flokksins er nú ISK 40.705.000.000.
Nánari upplýsingar veitir Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, ottar@lanasjodur.is / s. 515 4949