Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokkunum LSS 39 0303 og LSS151155 þann 16. september 2026. Uppgjör viðskipta fer fram 21. september 2026.
Alls bárust tilboð í LSS 39 0303 að nafnvirði ISK 2.250.000.000 á bilinu 3,83% - 4,05%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 730.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,85%. Útistandandi fyrir voru ISK 50.319.100.000 að meðtöldum eigin bréfum Lánasjóðsins vegna viðskiptavaktar (ISK 1.000.000.000). Heildarstærð flokksins er nú ISK 51.049.100.000.
Engin tilboð bárust í LSS151155. Heildarstærð flokksins er ISK 40.705.000.000.
Nánari upplýsingar veitir Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, ottar@lanasjodur.is / s. 515 4949