Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur í dag, 11. september 2026, staðfest viðauka (Viðauki I) við grunnlýsingu Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. dags. 13. ágúst 2026.
Viðaukinn felur í sér uppfærslu á skilmálum skuldabréfanna í kafla 9. Breytingin er gerð til að kveða með skýrum hætti á um heimild útgefanda til að afla og móttaka upplýsingar um skráða eigendur skuldabréfanna á hverjum tíma frá verðbréfamiðstöð og reikningsstofnunum.
Viðaukinn skal lesinn með hliðsjón af grunnlýsingu sjóðsins sem samanstendur af útgefandalýsingu og verðbréfalýsingu, báðum dags. 13. ágúst 2026.
Viðaukann má nálgast á vefsíðu Lánasjóðsins: https://www.lanasjodur.is/fjarfestar
Nánari upplýsingar veitir:
Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri lanasjodur@lanasjodur.is Sími: +354 515 4900