Hagnaður Lánasjóðs sveitarfélaga nam 1.299 milljónum króna á fyrri árshelmingi 2026 samanborið við 1.137 milljónum króna á sama tímabili árið 2025.
Heildareignir sjóðsins námu 239 milljörðum króna í lok júní 2026 og jukust um 4,3% frá árslokum 2025 þegar þær námu 229 milljörðum króna. Útlán sjóðsins námu 221 milljarði króna í lok tímabilsins, samanborið við 212 milljarða króna í árslok 2025. Ný útlán á fyrri helmingi ársins námu 10,2 milljörðum króna samanborið við 9,4 milljarða króna á sama tímabili árið 2025. Útlán til sveitarfélaga voru í samræmi við áætlun sjóðsins á tímabilinu.
Verðbréfaútgáfa sjóðsins var 203 milljarðar króna í lok júní 2026 og jókst um 4% frá árslokum 2025 þegar hún nam 195 milljörðum króna.
Eigið fé Lánasjóðsins nam 28,2 milljörðum króna í lok júní 2026, samanborið við 26,9 milljarða króna í árslok 2025. Vegið eiginfjárhlutfall var 361% með nýtingu mildunarákvæðis, samanborið við 320% í árslok 2025.
| Rekstur fyrstu 6 mánaða ársins | 1.1.-30.6.26 | 1.1.-30.6.25 | 1.1.-30.6.24 | 1.1.-30.6.23 |
|---|---|---|---|---|
| Fjárhæðir í m.kr. | ||||
| Hreinar vaxtatekjur | 804 | 761 | 838 | 804 |
| Aðrar rekstrartekjur | 657 | 532 | 437 | 245 |
| Almennur rekstrarkostnaður | -163 | -156 | -143 | -133 |
| Hagnaður tímabilsins | 1.299 | 1.137 | 1.132 | 916 |
| Efnahagur í lok tímabils | ||||
| Útlán og kröfur | 220.673 | 206.656 | 195.234 | 183.278 |
| Handbært fé, ríkisbréf og -víxlar | 10.265 | 8.747 | 8.121 | 7.767 |
| Markaðsverðbréf, skuldabréf og aðrar eignir | 7.772 | 3.956 | 3.691 | 2.196 |
| Eignir samtals | 238.710 | 219.359 | 207.046 | 193.241 |
| Verðbréfaútgáfa | 203.207 | 190.379 | 179.937 | 169.890 |
| Aðrar lántökur, skuldir og skuldbindingar | 7.294 | 3.049 | 3.253 | 1.577 |
| Skuldir samtals | 210.501 | 193.428 | 183.191 | 171.467 |
| Eigið fé | 28.209 | 25.930 | 23.855 | 21.774 |
| CAD- hlutfall m/hefðbundinni mildun | 54,9% | 54,4% | 53,8% | 54,3% |
| CAD- hlutfall m/fullri mildun* | 361% | 364% | 410% | 579% |
| Vogunarhlutfall | 11,8% | 11,8% | 11,5% | 11,3% |
* Lánasjóðurinn nýtir sér mildunarákvæði vegna útlána til sveitarfélaga í íslenskum krónum sem eru með veð í tekjum sveitarfélaga.
Framtíðarhorfur
Lánasjóður sveitarfélaga gerir ráð fyrir að eftirspurn eftir útlánum verði svipuð og árið 2025. Starfsemi sjóðsins verður áfram rekin með sambærilegum hætti og áður, með áherslu á skilvirka þjónustu við sveitarfélög og ábyrga fjármögnun. Þá verður áfram lögð áhersla á að nýta sterkt lánstraust sjóðsins til að tryggja hagkvæma og stöðuga fjármögnun sveitarfélaga til framtíðar.
Nánari upplýsingar veitir: Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, s. 515 4949.