Kvika – ÍSH hs. gaf út skuldabréf sem tekin voru til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. á árinu 2014. Meðfylgjandi er árshlutareikningur 2026 fyrir Kviku – ÍSH hs.
Afkoma sjóðsins á fyrri árshelmingi 2026 nam 0,6 m.kr. samkvæmt rekstrarreikningi.
Hrein eign sjóðsins var jákvæð um 5,2 m.kr. samkvæmt efnahagsreikningi.
Árshlutareikningurinn var kannaður af Deloitte ehf. Við könnun þeirra kom ekkert fram sem bendir til annars en að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á tímabilinu, efnahag hans 30. júní 2026 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á tímabilinu, í samræmi við lög um ársreikninga og lög um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Kviku eignastýringar hf. í síma 522-0010.