Kvika banki hf. mun halda lokað útboð á sértryggðum skuldabréfum þriðjudaginn 13. október 2026. Boðinn verður til sölu nýr óverðtryggður flokkur á föstum vöxtum, KVIKA CB 32.
Útboð KVIKA CB 32 verður með hollensku fyrirkomulagi, þ.e. öll skuldabréfin verða seld á hæstu samþykktu ávöxtunarkröfu. Bankinn áskilur sér rétt til að samþykkja eða hafna tilboðum, í heild eða að hluta.
Áætlaður uppgjörsdagur viðskipta er 20. október 2026.
Sértryggðu skuldabréfin verða gefin út undir útgáfuramma Kviku fyrir sértryggð skuldabréf. Grunnlýsingu má finna á vefsíðu bankans hér: Sértryggð skuldabréf grunnlýsing. Áætlað er að viðskiptavakt með skuldabréfin hefjist fyrir árslok.
Verðbréfamiðlun Kviku hefur umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á tölvupóstfangið midlun@kvika.is fyrir kl. 16:00 þann 13. október 2026.
Fyrir frekari upplýsingar vinsamlegast hafið samband við fjárfestatengsl Kviku banka á netfanginu fjarfestatengsl@kvika.is.
