Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) hefur sótt um að auðkenni skuldabréfaflokksins TM 15 1 (ISIN: IS0000025930) verði breytt í KVIKA 45 0515 T2i.
Umsókn um breytinguna hefur verið lögð fram hjá Nasdaq Iceland og samhliða hjá Nasdaq CSD. Gert er ráð fyrir að breytingin taki gildi 15. september 2026.
Breytingin er gerð til að samræma auðkenni skuldabréfaflokksins við heiti útgefanda. Hún felur hvorki í sér breytingu á útgefanda skuldabréfaflokksins, ISIN-númeri hans, réttindum skuldabréfaeigenda né öðrum skilmálum flokksins. Aðrir skilmálar skuldabréfaflokksins haldast óbreyttir.
Fyrir frekari upplýsingar vinsamlegast hafið samband við fjárfestatengsl Kviku banka á netfanginu fjarfestatengsl@kvika.is.
