Stöðugar vaxtatekjur og kostnaðaraðhald skila sterkum grunnrekstri
Á stjórnarfundi þann 12. ágúst 2026 samþykktu stjórn og forstjóri árshlutauppgjör samstæðu Kviku banka hf. („Kvika“) fyrir annan ársfjórðung og fyrstu sex mánuði ársins 2026.
Helstu atriði í afkomu annars ársfjórðungs (2F 2026):
Helstu atriði efnahags þann 30.06.2026:
Helstu atriði fyrri árshelmings 2026:
Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku:
„Rekstur bankans á öðrum fjórðungi gekk prýðilega og mörg stór skref voru stigin í þá átt að auka arðsemi bankans til framtíðar. Fyrri árshelmingur var í heild sinni mjög góður og umtalsverð hagnaðaraukning milli ára.
Rúmlega 10 milljarða arður var greiddur til hluthafa í byrjun júní og það eigið fé sem bundið er í rekstrinum hefur lækkað samsvarandi. Einstaklega vel heppnað AT1 skuldabréfaútboð í byrjun fjórðungsins í Svíþjóð, að upphæð sem samsvarar 4 milljörðum króna gerði bankanum kleift að greiða út háan arð, en viðhalda engu að síður mjög sterkri eiginfjárstöðu.
Langbestu kjörum á erlendri skuldabréfaútgáfu Kviku var síðan náð í byrjun júní, þegar bankinn gaf út EUR 150 milljónir á kjörum sem samsvara um 1,65% álagi á millibankavexti. Þessi útgáfa gerir bankanum kleift að endurfjármagna umtalsvert dýrari erlenda fjármögnun síðar á árinu, sem styrkja mun vaxtamun, auk þess að fjármagna framtíðarvöxt lánabóka Kviku í erlendri mynt á lægri kjörum en Kviku hefur áður boðist.
Þóknanatekjur dragast umtalsvert saman milli ára, sem endurspeglar annars vegar mjög háar þóknanatekjur á öðrum fjórðungi 2025 vegna útboðs á hlut ríkisins í Íslandsbanka, en einnig áframhaldandi erfiðar markaðsaðstæður á íslenskum hlutabréfamarkaði.
Góður vöxtur var hins vegar í allri lánastarfsemi Kviku á fjórðungnum og jafnframt var mjög mikill innlánavöxtur. Þrátt fyrir þennan vöxt er rekstrarkostnaður bankans að lækka milli ára á tíma hárrar verðbólgu og mikilla launahækkana í samfélaginu. Ráðist var í erfiðar hagræðingaraðgerðir í byrjun júní, sem leiddu af sér rúmlega 100 milljón króna gjaldfærslu í fjórðungnum, en munu lækka enn frekar rekstrarkostnað bankans til framtíðar.
Það er mat stjórnar og stjórnenda að greiðsluþjónusta sé sú starfsemi sem bankinn stundi sem samræmist einna síst stefnu bankans og annarri starfsemi hans og hefur því verið ákveðið að setja Straum, dótturfélag bankans, í söluferli. Einkaviðræður um söluna standa nú yfir og vonast er til að henni ljúki fyrir árslok.
Vegna þeirra aðgerða sem að ofan greinir stefnir í, að öðru óbreyttu, að arðsemi rekstrar bankans á næstunni verði mjög góð. Dregið hefur verið umtalsvert úr eiginfjárbindingu með háum arðgreiðslum, AT1 útgáfu og kaupum á eigin bréfum. Rekstrarkostnaður bankans er nú lægri en hann hefur verið í mörg ár. Sterkur vöxtur lánabóka og innlána auk nýrra eignastýringarafurða munu skila sér í auknum tekjum og á sama tíma er fjármögnunarkostnaður bankans í erlendum gjaldmiðlum að lækka hratt.”
Kynningarfundur og fjárfestakynning
Kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila verður haldinn fimmtudaginn 13. ágúst kl. 08:30 í höfuðstöðvum bankans á 9. hæð í Katrínartúni 2, 105 Reykjavík. Fundinum verður jafnframt streymt á íslensku á eftirfarandi vefslóð:
https://kvika.is/kynning-a-uppgjori-6m-2026/
Hægt er að senda tölvupóst með spurningum fyrir fund eða á meðan honum stendur á netfangið; fjarfestatengsl@kvika.is
Meðfylgjandi er fjárfestakynning. Að auki mun upptaka með enskum texta vera gerð aðgengileg á vefsvæði Kviku.
Viðhengi
