Kaldalón hf. efnir til útboðs á víxlum, miðvikudaginn 26. ágúst næstkomandi. Boðnir verða til sölu sex mánaða víxlar í nýjum flokki KALD 27 0301.
Kaldalón hf. efnir til útboðs á víxlum, miðvikudaginn 26. ágúst næstkomandi. Boðnir verða til sölu sex mánaða víxlar í nýjum flokki KALD 27 0301.
Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu flötu vöxtum sem tekið er. Víxlarnir eru gefnir út í 20 m.kr. nafnverðseiningum. Félagið áskilur sér rétt til þess að samþykkja öll tilboð, hafna öllum tilboðum eða taka tilboðum að hluta. Tilkynnt verður um niðurstöðu útboðsins og úthlutun til fjárfesta þegar niðurstaða liggur fyrir þó eigi síðar en fyrir opnun markaða fimmtudaginn 27. ágúst.
Landsbankinn hf. hefur umsjón með útboðinu. Tilboðum, þar sem fram koma upplýsingar um nafnverð og flata vexti, skal skilað til Landsbankans hf. fyrir kl. 16:00 miðvikudaginn 26. ágúst á netfangið: verdbrefamidun@landsbankinn.is
Greiðslu- og uppgjörsdagur er fyrirhugaður þriðjudaginn 1. september 2026.
Útboðið er lokað og undanþegið gerð lýsingar á grundvelli c og d-liðar, 4. mgr. 1. gr. lýsingarreglugerðar (ESB) nr. 2017/1129, sem innleidd var með lögum nr. 14/2020, um sama efni. Grunnlýsing útgáfuramma, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu víxlaflokksins og töku víxlanna til viðskipta í Kauphöll verða birt á vefsíðu félagsins, kaldalon.is/fjarfestar
Nánari upplýsingar veita:
Sigurbjörg Ólafsdóttir, fjármálastjóri Kaldalóns hf. sigurbjorg.olafsdottir@kaldalon.is
Gunnar S. Tryggvason s: 410 6709 / 821 2090 eða gunnars@landsbankinn.is