Á aðalfundi Kaldalóns hf. sem haldinn var þann 26. maí 2026 var samþykkt að heimila félaginu að kaupa, í eitt skipti eða oftar, hluti í félaginu fyrir allt að 10% af heildarhlutafé félagsins í þeim tilgangi að setja upp formlega endurkaupaáætlun eða til að gera hluthöfum almennt tilboð um kaup félagsins á eigin hlutum, til dæmis með útboðsfyrirkomulagi. Tilkynnt var um upphaf formlegrar endurkaupaáætlunar á allt að 10.000.000 hluta hinn 30. júní sl. og er hún yfirstandandi.
Stjórn Kaldalóns hf. hefur á grundvelli fyrrgreindrar samþykktar tekið ákvörðun um að gera hluthöfum félagsins tilboð um kaup á eigin hlutum með öfugu tilboðsfyrirkomulagi í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins. Endurkaupin munu að hámarki nema 16.500.000 hlutum í félaginu, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 400 milljónir króna. Við endurkaup skal hæsta leyfilega endurgjald fyrir hvern hlut ekki vera hærra en sem nemur verði síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem er hærra.
Samið hefur verið við Acro verðbréf hf. um að annast endurkaupin. Kaupin fara fram samkvæmt öfugu tilboðsfyrirkomulagi og samkvæmt hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæsta verði sem verður tekið. Allir hluthafar Kaldalóns hf., sem skráðir eru í hlutaskrá eftir lok viðskipta dagsins í dag, 21. september 2026, geta gert tilboð um að selja hluti sína til félagsins fyrir milligöngu markaðsviðskipta Acro verðbréfa hf.
Kaldalón hf. áskilur sér rétt til að taka eða hafna hvaða tilboði sem er í heild eða að hluta.
Endurkaupin eru í samræmi við viðeigandi lög og reglugerðir, þ.m.t. lög nr. 2/1995 um hlutafélög, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR) og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2016/1052 sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir, sem hafa lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum.
Tilboðum skal skila til Markaðsviðskipta Acro verðbréfa hf., sem einnig svara fyrirspurnum, á netfangið midlarar@acro.is merkt „Kaldalón endurkaup“ fyrir kl. 08:30, þriðjudaginn 22. september 2026.
Niðurstöður verða tilkynntar í fréttakerfi Nasdaq Iceland fyrir kl. 9:30, þriðjudaginn 22. september 2026. Uppgjörsdagur samþykktra tilboða er fimmtudaginn 24. september 2026.
Kaldalón hf. á 6.096.232 eigin hluti áður en endurkaupin samkvæmt öfuga tilboðsfyrirkomulaginu hefjast.
Nánari upplýsingar veitir:
Markaðsviðskipti Acro verðbréfa hf., midlarar@acro.is
Högni Hjálmtýr Kristjánsson, framkvæmdastjóri rekstrar, hogni.kristjansson@kaldalon.is