Kaldalón hf. hefur lokið stækkun á skuldabréfaflokknum KALD 100240 GB sem gefinn er út undir 70.000 m.kr. útgáfuramma félagsins. Seld voru skuldabréf fyrir 2.000 m.kr. að nafnvirði á ávöxtunarkröfunni 4,15%. Heildarstærð flokksins eftir stækkun verður 5.000 m.kr.

Skuldabréfaflokkurinn KALD 100240 GB er verðtryggður á föstum 3,90% ársvöxtum, til 14 ára en endurgreiðsluferli afborgana og vaxta fylgir 30 ára jafngreiðsluferli. Skuldabréfaflokkurinn er veðtryggður samkvæmt almennu tryggingarfyrirkomulagi.
Greiðslu- og uppgjörsdagur er fyrirhugaður miðvikudaginn 16. september 2026.
Landsbankinn hafði umsjón með stækkun flokksins og töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland.
Nánari upplýsingar um útgáfuramma félagsins og skuldabréfaútgáfu má nálgast á vefsíðu félagsins; kaldalon.is
Nánari upplýsingar veita:
Sigurbjörg Ólafsdóttir, fjármálastjóri Kaldalóns hf. sigurbjorg.olafsdottir@kaldalon.is
Gunnar S. Tryggvason s: 410 6709 / 821 2090 eða gunnars@landsbankinn.is