Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Kaldalóns hf. fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2026 var samþykktur af stjórn félagsins 20. ágúst 2026.
| H1 2026 | H1 2025 | |
|---|---|---|
| Rekstrartekjur | 3.132 | 2.638 |
| Tekjuvegið útleiguhlutfall (án þróunareigna) | 97,5% | 96% |
| Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu | 2.418 | 2.056 |
| Rekstrarhagnaðarhlutfall | 77% | 78% |
| Matsbreyting á tímabilinu | 2.859 | 1.833 |
| Heildarhagnaður fyrir skatta | 2.370 | 1.753 |
| Hagnaður á hlut | 1,73 | 1,27 |
| Arðsemi eigin fjár á ársgrundvelli | 14,0% | 11,3% |
| Handbært fé frá rekstri | 1.163 | 695 |
| Handbært fé í lok tímabils | 539 | 1.243 |
| 30.6.2026 | 31.12.2025 | |
|---|---|---|
| Fjárfestingareignir | 99.844 | 84.959 |
| Heildareignir | 102.313 | 86.387 |
| Vaxtaberandi skuldir | 57.753 | 48.092 |
| Eigið fé | 34.357 | 28.104 |
| Eigið fé og tekjuskattsskuldbinding | 42.152 | 35.425 |
| Veðsetningarhlutfall | 58% | 57% |
| Eiginfjárhlutfall | 34% | 33% |
Allar fjárhæðir eru í milljónum króna nema annað sé tekið fram. Fjárhæðir eru ekki leiðréttar fyrir 38 m.kr. einskiptiskostnaði sem fellur undir rekstrargjöld tímabilsins.
„Kaldalón náði á tímabilinu því vaxtarmarkmiði sem félagið setti sér fyrir þremur árum. Með afhendingu fasteigna FÍ fasteignafélags 1. júní er eignasafn félagsins um 169.000 fermetrar og verðmæti fjárfestingareigna nemur tæpum 100 milljörðum króna. Áfanginn er í samræmi við þá áætlun sem kynnt var fjárfestum og næst á þeim tíma sem félagið setti sér.
Rekstrartekjur tímabilsins voru 3.132 m.kr. og vaxa um 19% milli ára. Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu hækkar um 18% og rekstrarhagnaðarhlutfall er 77%. Tekjuvöxturinn kemur til vegna stærra eignasafns, nýrra og endurnýjaðra leigusamninga og verðlagsbreytinga. Handbært fé frá rekstri eykst um 67% milli ára og nemur 1.163 m.kr. Tekjur vegna kaupa á fasteignum FÍ kemur að litlu leyti fram á tímabilinu, þar sem afhending var 1. júní s.l.
Með þessum áfanga er metnaðarfullu vaxtarmarkmiði sem sett var fyrir um þremur árum að ljúka. Áherslur félagsins færast nú í auknum mæli að rekstri eignasafnsins, útleigu og þróun þess. Næstu misseri fara meðal annars í móttöku fasteigna FÍ, úrvinnslu þeirra og útleigu, en hluti safnsins er óútleigður. Þar liggja jafnframt skýr tækifæri til tekjuvaxtar án nýrrar fjárfestingar.
Samhliða hefur félagið aukið endurgreiðslur til hluthafa. Á tímabilinu greiddi félagið 998 m.kr. í arð, keypti eigin bréf fyrir 172 m.kr. og lækkaði hlutafé um 24,3 milljónir hluta. Í samræmi við kynnta stefnu má vænta stighækkandi endurgreiðslna til hluthafa samhliða hlutfallslega hægari vexti félagsins.
Fjórar fasteignir voru seldar á öðrum ársfjórðungi, þar af þrjár sem keyptar voru innan tímabilsins. Þær eignir hentuðu ekki uppbyggingu eignasafnsins til lengri tíma. Salan hefur áhrif á tekjur ársins og afkomuspá félagsins er uppfærð til samræmis. Þetta er hluti af þeirri vinnu sem er framundan, að þróa safnið og hagræða því.
Á fjármögnunarhlið hélt félagið áfram á sömu braut. Kaldalón gaf út skuldabréf fyrir samtals 14.560 m.kr. á tímabilinu, þar af grænan flokk fyrir 3.000 m.kr., og vegnir meðalvextir verðtryggðra skulda lækkuðu úr 4,5% í 4,3%. Félagið er reglulegur útgefandi á skuldabréfamarkaði og þar liggja áfram umtalsverð tækifæri til hagræðingar á skuldahlið efnahagsreikningsins.
Eftirspurn eftir atvinnueignum er metin stöðug og tekjustreymi félagsins er fyrirsjáanlegt, þar sem nær allir leigusamningar félagsins eru verðtryggðir og tekjuvegin meðallengd þeirra er 8,2 ár. Hátt vaxtastig og verðlagshækkanir setja áfram mark sitt á starfsumhverfið og félagið fylgist vel með þróun ytri aðstæðna. Kaldalón er vel í stakk búið til að mæta þörfum viðskiptavina sinna og mun áfram nýta þau tækifæri sem félagið metur arðbær til langs tíma.“
Félagið uppfærir rekstrarhorfur fyrir árið 2026. Á öðrum ársfjórðungi voru fjórar fasteignir seldar sem ekki hentuðu uppbyggingu eignasafnsins til lengri tíma og hefur það áhrif á tekjur og rekstrarhagnað ársins. Frekari upplýsingar má finna í fjárfestakynningu sem birt er samhliða uppgjöri.
Félagið væntir þess að leigutekjur ársins verði á bilinu 6.670 – 6.800 m.kr. og að rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingar verði á bilinu 5.140 – 5.300 m.kr. Horfur í rekstri verða uppfærðar þegar tilefni gefur til.
Kaldalón undirritaði kauptilboð í fasteignir FÍ fasteignafélags slhf. í desember 2025 og voru fyrirvarar viðskiptanna uppfylltir á öðrum ársfjórðungi.. Eignirnar, um 23.500 fermetrar að stærð og að mestu í Reykjavík, voru afhentar 1. júní 2026. Kaupverð var 12.280 m.kr. og var greitt með afhendingu hlutafjár og nýs skuldabréfaflokks, KALD 220437, til seljenda. Í tengslum við viðskiptin var hlutafé félagsins hækkað um 221.040.000 hluti.
Vaxtaberandi skuldir samstæðunnar námu 57.753 m.kr. í lok tímabils og veðsetningarhlutfall var 58%. Leiðrétt veðsetningarhlutfall, þar sem tekið er tillit til seldra eigna á tímabilinu og viðskiptakrafna vegna sölu þeirra, er rúmlega 56%. Handbært fé nam 539 m.kr. í lok tímabils og auk þess hefur félagið aðgang að ónýttum lánalínum fyrir allt að 2.900 m.kr.
Félagið gaf út græna skuldabréfaflokkinn KALD 100240 í febrúar og seldi fyrir 3.000 m.kr., flokkinn KALD 120531 í maí og júní fyrir samtals 5.000 m.kr. og flokkinn KALD 220437 fyrir 6.560 m.kr. í tengslum við kaup á fasteignum FÍ. Samtals hefur félagið gefið út markaðsskuldabréf og víxla fyrir 33.360 m.kr. Vegnir meðalvextir verðtryggðra skulda voru 4,3% í lok tímabils samanborið við 4,5% í árslok 2025 og 83% langtímaskulda félagsins eru innan almenna tryggingafyrirkomulagsins.
Hlutafé félagsins var lækkað um 242.918.180 kr. að nafnvirði í kjölfar aðalfundar 26. mars 2026 og hækkað um 2.210.400.000 kr., eða 221.040.000 hluti, vegna kaupanna á fasteignum FÍ. Í lok tímabils var hlutafé félagsins 12.825.665.260 kr. og skiptist í 1.282.566.526 hluti. Eigin hlutir voru 3.272.194 eða 0,26% af útgefnu hlutafé.
Skýrsla stjórnar og forstjóra félagsins er að finna í samandregnum árshlutareikningi félagsins. Samandreginn samstæðuárshlutareikningur er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um samandregna árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið staðfestur af Evrópusambandinu, og hefur verið kannaður af endurskoðanda félagsins.
Samhliða uppgjörinu er boðað til kynningarfundar fimmtudaginn 20. ágúst kl. 16:00 á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2. Húsið opnar kl. 15:45. Á fundinum munu stjórnendur fara yfir starfsemina á tímabilinu, árshlutauppgjör og framtíðarhorfur. Við upphaf fundar verður kynningarefnið jafnframt aðgengilegt á vefsíðu Kaldalóns.
Hægt er að nálgast árshlutareikninginn á kaldalon.is/fjarfestar.
Jón Þór Gunnarsson, forstjóri, jon.gunnarsson@kaldalon.is