Kaldalón hf. mun birta uppgjör fyrri árshelmings 2026 eftir lokun markaða fimmtudaginn 20. ágúst.
Opinn kynningarfundur vegna uppgjörsins verður haldinn fimmtudaginn 20. ágúst kl. 16:00 á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2. Húsið opnar kl 15:45.
Á fundinum munu stjórnendur fara yfir starfsemina á árinu, árshlutauppgjör og framtíðarhorfur. Við upphaf fundar verður kynningarefnið jafnframt aðgengilegt á vefsíðu Kaldalóns.